Úrval - 01.11.1969, Side 122
120
ÚRVAL
Þetta er það vitundarstig, sem
yogafræðarar Indverja kalla Budd-
hi, en það er venjulega þýtt Ein-
ingarvitund, þótt orðrétt þýði það
vizkuvitund, eða uppljómunarvit-
und. En okkar venjulega vitund
heitir hjá þeim þar eystra: Manas
eða hugræn vitund.
Þetta er um eðli og tilgang yoga.
Nú skulum við líta á greinar
yogafræðanna, því að yogafræðin
eru sundurgreind í fræðikerfi og
skóla, eins og öll mannleg viðleitni.
Yogavísindin eru fyrst og fremst
í tveimur deildum: Það er hugrænt
yoga annars vegar og lífeðlisfræði-
legt yoga hins vegar. Allt, sem ég
sagði áðan um eðli og tilgang yoga,
á við um hvort tveggja, þótt það
væri sett fram meira frá sjónar-
sviði hins hugræna yoga. Hinar líf-
eðlisfræðilegu yogagreinar leggja
áherzlu á að ná hinum andlega til-
gangi sínum með því að byrja á
líkama mannsins, taka taugakerfið
fyrir, fikra sig svo ófram inn á lönd
sálarlífsins. Hinar lífeðlisfræðilegu
yogagreinar eru fyrst og fremst
Hatha yoga, Laya yoga og Mantra
yoga. Af þeim er Hatha yoga bezt
þekkt og mest iðkuð og leyfi ég
mér því að taka hana sem fulltrúa
íyrir þann flokk.
Hatha yoga æfingar eru mikils til
fóignar í andardráttaræfingum og
ýmiss konar stellingum og beygj-
um. Tilgangurinn er fyrst og fremst
sá ,að ná sem beztu valdi yfir lík-
amanum, aðallega ósjálfráða tauga-
kerfinu. Andardrátturinn, blóðrásin
og hjartslátturinn og starfsemi
innra líffæra, einkum starfsemi
hinna lokuðu kirtla, er ósjálfráð,
gengur sinn gang óháð vitundar-
starfsemi mannsins að mestu leyti,
þótt alþekkt sé, að ástand vitundar-
innar, svo sem geðbrigði og þrá-
hyggja, hefur all mikil áhrif á
hana.
En Hatha yoginn hyggst verða
slíkur herra yfir líkama sínum, að
hann ekki bara ali líkamann skyn-
samlega upp og þjálfi hann, eins og
skikkanlegur íþróttamaður gerir,
heldur kunni einnig ráð til þess að
láta andardrátt og blóðrás, hjart-
slátt og kirtlastarfsemi lúta vilja
sínum. Hann gerir þannig innrás
inn í hina átómatísku stýringu, sem
náttú.ran hefur sett í hinn mannlega
skrokk.
Þannig hyggst Hatha yoginn öðl-
ast mátt, er hann ekki hefur, og
ýmis dularfull fyrirbæri, er yogar
láta gerast, eiga rætur sínar í slíkri
þjálfun, að fróðra manna sögn.
Yogi getur þolað miklar líkam-
legar þjáningar, af því að hann
kann að taka hluta af taugakerfinu
úr sambandi, svo að komizt sé mjög
óvísindalega að orði.
Hálærðir og háþjálfaðir Hatha
yogar kunna ráð til að stöðva hjart-
slátt og andardrátt um tíma og
knýja líkamahn til að falla í eins
konar dauðadá um stund. Þeir hafa
verið múraðir inni í klefum og
grafnir lifandi og dvalizt þar jafn-
vel svo dögum skipti, í því ástandi.
Hinar hugrænu yogagreinar sinna
hins vegar lítið eða ekki slíkum
iðkunum.
Aðalgreinar þeirra eru: Karma
yoga, yoga athafna og starfs, Bhakti
yoga, yoga tilbeiðslu og kærleika,
Jnana yoga, yoga þekkingar og