Morgunblaðið - 01.07.2005, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2005 21
ERLENT
Leyfa samkynhneigðum
að giftast og ættleiða börn
Kaþólska kirkjan á Spáni og
Þjóðarflokkurinn mótmæla
Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur
bab@mbl.is
SPÆNSKA þingið setti í gær lög sem heimila samkyn-
hneigðum að ganga í hjónaband, þrátt fyrir eindregin mótmæli
af hálfu kaþólsku kirkjunnar og íhaldsmanna í landinu. I lög-
unum felst að samkynhneigð hjón hljóta sömu réttindi og
gagnkynhneigð hjón, þar með talið réttinn til að ættleiða börn
og erfðarétt.
Frumvarpið að lögunum, sem lagt var fram af ríkisstjórn
Sósíalistaflokks Jose Luis Rodriguez Zapatero forsætisráð-
herra, var samþykkt í fulltrúadeild þingsins með 187 atkvæð-
um af 350.147 greiddu atkvæði gegn frumvarpinu og fjórir
sátu hjá. Með samþykkt fulltrúadeildarinnar er þeirri niður-
stöðu öldungadeildarinnar frá því í síðustu viku að fella frum-
varpið, hnekkt.
Taka gildi innan tveggja vikna
Nokkur geðshræring greip um sig í þinghúsinu þegar úrslit
atkvæðagreiðslunnar voru kunngjörð. Baráttufólk fyrir rétt-
indum samkynhneigðra, sem sat á þingpöllum, fagnaði hástöf-
um, féllst í faðma, felldi tár og sendi þingmönnum fingurkossa.
Nokkrir meðlimir Þjóðarflokksins (PP), hins hægri sinnaða
stjómarandstöðuflokks, hrópuðu „þetta er hneisa“. Þingmenn
hlynntir lögunum stóðu á fætur og klöppuðu.
Næsta skref er að Jóhann Karl, konungur landsins, skrifar
undir lögin og taka þau síðan gildi strax á næstu dögum, í
fyrsta lagi nú í dag, föstudag, en eigi síðar en eftir tvær vikur,
að sögn upplýsingaskrifstofu þingsins. Um fimm þúsund sam-
kynhneigð pör á Spáni hafa þegar tilkynnt að þau muni ganga
í hjónaband um leið og lögin taka gildi, að því er fram kemur á
fréttavef BBC.
Spánn er fjórða landið í heiminum sem leyfir samkjm-
hneigðum að ganga í hjónaband. „Á undan okkur voru Belgía
og Holland, og síðan Kanada sem leyfði þetta í fyrradag. Við
erum ekki þau fyrstu til að taka upp lög af þessu tagi og ég er
sannfærður um að við verðum ekki þau síðustu. Mörg önnur
lönd munu koma á eftir, knúin áfram af tveimur óstöðvandi öfl-
um, frelsi og jafnrétti,“ sagði Zapatero í gær. Hann sagði einn-
ig að þó að samkynhneigðir væru í minnihluta í landinu þá
væri sigur þeirra sigur alira: „Sigur þeirra gerir okkur öll
betri, gerir samfélag okkar betra [...] Við erum ekki að setja
þessi lög fyrir eitthvað óskilgreint ónafngreint fólk. Þessi
auknu réttindi verða til að efla hamingju nágranna okkar,
vinnufélaga, vina okkar og fjölskyldumeðlima," sagði Zapat-
ero.
íhaldsmenn innan kaþólsku kirkjunnar og meðlimir PP hafa
sýnt frumvarpinu eindregna andstöðu frá því að það kom fram.
Eftir að frumvarpið var samþykkt í gær varaði Mariano Rajoy,
leiðtogi PP, við því að málið myndi „kljúfa spænskt samfélag".
Rajoy sagði Zapatero frekar hefðu átt að sækjast eftir sam-
komulagi á þinginu um að veita samvist samkynhneigðra stað-
festingu, án þess þó að kalla það hjónaband. I rökstuðningi
fyrir atkvæði sínu gegn frumvarpinu sagði Rajoy að „alla
mannkynsöguna" hefði hjónaband verið „stofnun milli karls og
konu“. Sagði hann að PP hefði sýnt andstöðu sína við máhð
með þvi að greiða atkvæði gegn því og nú myndi flokkurinn
kanna grundvöll þess að áfrýja málinu til stjómarskrárdóm-
stóls Spánar.
„Gegn guði og náttúrunni"
Gagnrýni á lögin hefur einnig borist að utan. Meðal eindreg-
inna gagnrýnenda er Roberto Calderoli, umbótaráðherra Ital-
íu. Calderori, sem tilheyrir Norðurbandalaginu, sagði í gær að
lögleiðing hjónabands samkynhneigðra á Spáni gengi „gegn
guði og náttúrunni" og væri „skaðleg" afleiðing sigurs vinstri-
manna í síðustu þingkosningum þar í landi. „Sjálfur vil ég
fylgja náttúrunni og góðum guði og mun alltaf taka spænskar
konur fram yfir spænska karla,“ sagði Caldori.
Spænsk samtök þrýstihópa sem hlynntir eru kaþólsku kirkj-
unni og ganga undir nafninu „vamarþing fjölskyldunnar“
krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um málið á Spáni og hafa af-
hent þingmönnum undirskriftir 600 þúsund manna sem era á
móti lögunum. Samtökin stóðu fyrir mótmælum gegn lögunum
um síðustu helgi í miðborg Madrídar og þangað mætti um hálf
milljón manna, þeirra á meðal ijöldi biskupa, presta og nunna.
Álíka margir mættu á samkomu sem samtök samkynhneigðra
skipulögðu til höfuðs mótmælunum.
Skoðanakannanir sýna að um þrír af hverjum fjóram kosn-
AP
Nýju lögin eru umdeild á Spáni. Fjöldi fólks mótmælti þeim í
miðborg Madrídar í gær og margir héldu á lofti skiltum þar
sem stóð: Hjónaband, karl og kona.
ingabæram Spánverjum era hlynntir hinni fijálslyndu stefnu
ríkisstjómar sósíalista og að jafnvel þótt flestir Spánverjar játi
rómversk-kaþólska trú telji þeir kirkjuna úr takti við almenn-
an vilja þjóðarinnar. Kannanir sýna einnig að um það bil tveir
af hverjum þremur Spánverjum eru hlynntir hjónaböndum
samkynhneigðra og að þjóðin skiptist til helminga í afstöðu
sinni til ættleiðinga samkynhneigðra.
www.toyota.is
Þú sparaÉj||[||||||||||||
og umhverfið hagnast
Prius - 63% afsláttur af aðflutningsgjöldum
Okkur er það sérstök ánægja að geta nú boðið umh-
verfisvæna tvinnbílinn Prius, bíl ársins í Evrópu árið
2005, á mun lægra verði en áður eða aðeins
2.490.000 kr. Prius er einstakur bíll sem tvinnar saman raforku og
bensíneldsneyti. Hann gefur frá sér lítinn sem engan útblástur í tafsamri
Verð: 2.490.000 kr.
umferð eða í innanbæjarakstri og umhverfið hagnast. En þú hagnast
líka. Fyrir þig er það umtalsverður sparnaður að aka bíl með einstakri
eldsneytisnýtingu eða um 4,1 I á hverja 100 km. Settu í græna gírinn!
Aktu á Prius!
úf®1)
TODAY TOMORROW TOYOTA
Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570 5070