Morgunblaðið - 01.07.2005, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2005
MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
x _
Ibúar við Ægisíðuna vilja vernda og byggja upp útivistargildi svæðisins
Hlúa þarf að
strandlengjunni
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
Vesturbær I Nokkrir íbúar við
Ægisíðuna hafa undanfarna daga
hist og rætt skipulagsmái og þá
þróun sem orðið hefur í um-
ræðunni um þéttingu byggðar í
Reykjavík. Kveðast þeir í því sam-
hengi vilja leggja ríka áherslu á
að ekki verði byggt frekar við
Ægisíðuna og hugmyndir um
byggð á landfyllingum taki ekki
til þessa gróna borgarhluta.
Bjarni Jónsson, listmálari og
íbúi við Ægisíðuna, segir nokkra
nágranna við götuna hafa hist á
dögunum og rætt framtíð Ægisíð-
unnar í ljósi umræðna um skipu-
lagsmál. Niðurstaðan hafi verið
einróma, enda muni framkvæmdir
og auknar byggingar hafa óaftur-
kræf áhrif á strandlengjuna.
Bjarni segir mikið í húfi að fjar-
an sé vernduð og einnig sú götu-
og byggðarmynd sem þar ríkir.
„Ef það á að þétta byggð, þá ætti
að gera það á svæðum þar sem
hún er óþétt, eins og í Grafarvogi
eða efri hverfunum,“ segir Bjarni.
„Vesturbærinn er mjög þéttur nú
þegar.“
Minnast sögu sjómanna
Bjarni hefur m.a. sett fram
hugmyndir um varðveislu þess-
Morgunblaðið/Eyþór
Söguáhugi Bjarni Jónsson iist-
málari hefur málað fjölda mynda
af sjávarháttum og útgerð.
arar gömlu útgerðarstöðvar, þar
sem sjómenn höfðu verbúðir og
reru frá fjörunni. „Hér við Æg-
isíðuna er eitt síðasta gamla báta-
lægið, Grímsstaðavörin, þar sem
var gömul verbúð og bátar teknir
Minnisvarði Hugmynd Bjarna að endursköpun verbúðarinnar.
á land. Þar gerðu líka út siðustu
grásleppukarlarnir við Ægisíð-
una,“ segir Bjarni. „Þessa verbúð
væri hægt að endurskapa og gera
vel úr garði og jafnvel hafa verið
uppi hugmyndir um að koma hér
upp litlum veitingastað fyrir
ferðamenn, en hann færi afar vel
með svona endurreisn á minjum.
Þetta væri líka til umhugsunar
fyrir ráðamenn. Skúrarnir eru nú
orðnir til lýta og eru að grotna
niður og fjúka út um allt. Það er
engin prýði að þeim lengur. Betra
væri að reisa fallegan minnis-
varða um gamla tímann, til dæmis
með því að setja upp gamla ver-
búð í Grímsstaðavör. Áraskipin
voru okkar atvinnutæki í margar
aldir og það er mikilvægt að varð-
veita minningu þeirra og geta
sýnt gestkomandi og komandi
kynslóðum hvernig þetta var.“
OIl fegrun umhverfis
áhugaverð
Dagur B. Eggertsson, formaður
skipulags- og byggingaráðs, segir
engar hugmyndir uppi um frekari
nýtingu landsins við Ægisíðuna
undir íbúðabyggð af hendi R-list-
ans. Þá kveður hann útiiokað að
hann myndi taka í mál slíkar hug-
myndir ef þær bærust á borð til
hans, enda sé góð sátt um að hún
sé fyrst og fremst útivistarsvæði.
Dagur segist ekki hafa séð hug-
myndir Bjarna um bátalægi og
endurreisn gamallar verbúðar, en
hann sé opinn fyrir því að kynnast
þeim, enda alltaf ánægjulegt að
skoða góðar hugmyndir. „Eg er
út af fyrir sig hrifinn af hug-
myndum sem gefa þessu frábæra
útivistarsvæði krydd. Strand-
Iengjusýningin, þar sem ýmis úti-
listaverk voru sett upp, heppn-
aðist afar vel og mörg listaverkin
standa enn og eru til mikiliar
prýði,“ segir Dagur og bætir við
að mikilvægt sé að minnast sög-
unnar. I því skyni munu aðstand-
endur ungmennanna fjögurra,
sem fórust í flugslysinu í Skerja-
firði fyrir fimm árum, setja upp
minnisvarða í ágúst til minningar
um ástvini sína.
AKUREYRI
Skokkað og gengið I Þorvalds-
dalsskokkið fer fram á morgun,
laugardag. Lagt verður af stað frá
Fornhaga í Hörgárdal kl. 10 og
hlaupið gegnum Þorvaldsdalinn,
um 26 km leið. Skráning fer fram
við Árskógsskóla, þar sem hlaupið
endar, og þar geta menn skilið eftir
bfla og föt, en keppendum verður
ekið þaðan að rásmarki. Þátttöku-
gjald er 1.000 kr.
Ferðafélagið Hörður efnir svo til
göngu frá Draflastaðakirkju í
Fnjóskadal að Laufási við Eyjafjörð
á sunnudaginn. Á göngunni verða
riíjuð upp æviatriði Sigurðar Sig-
urðssonar búnaðarmálastjóra, sem
ólst upp á Draflastöðum. Einnig
verður saga kirkjustaðanna
tveggja stuttlega kynnt. Þetta er
létt 4-5 tíma ganga um gróna mela
og skóga, þar á meðal Skugga-
bjargaskóg sem er einn hávaxnasti
birkiskógur á íslandi. Fólki verður
ekið aftur að farartækjum sínum að
Draflastöðum frá Laufási.
ActiChrom
5&LARAY
ÁctiChroin"'
Glerartorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lffsins Lind i Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lffslind Mosfellsbæ, Stúdió Dan isafirði
www.islandia.is/~heilsuhorn
PÓSTSENDUM
Listasumar
Fóstudagur | Ketilhúsið kl. 12:
Tríó Trix. Sigríður Bjarney Bald-
vinsdóttir, fiðla, Vigdís Másdóttir,
víóla, og Helga Björg Agústsdóttir,
selló
Laugardagur | Ketilhúsið kl. 14: „í
minningu afa.“ Opnun á sýningu á
kínverskri myndlist. Kl. 14.30 og
16.30: Fyrir-
lestur í máli og
myndum um kín-
verska menningu
og sýning á kín-
verskri leikfimi
og dansi.
Listasafnið kl.
15: „SKRÝMSL
- Ovættir og af-
skræmingar.“
Opnun á sýningu
á íslenskri samtímalist.
Gallerí Svartfugl og Hvítspói kl.
15: Opnun á sýningu Sveinbjargar
Hallgrímsdóttur á tréristum. Sýn-
ingin ber yfirskriftina „Blær“.
Jónas Viðar Gallery kl. 15.30:
„Undir Hannesi.“ Samsýning 10
sunnlenskra listakvenna.
Deiglan kl. 16: Kristján Pétur
Sigurðsson opnar sýninguna „Tón-
fræði fyrir að(fram)komna“. Kl. 17:
Tónleikar í tengslum við sýningu
Kristjáns Péturs í Deiglunni með
Populus Musica.
Safnasafnið Svalbarðsströnd:
Opnun á innsetningu Guðrúnar
Veru Hjartardóttur.
Skeljahátíð í Hrísey: Veislu-
borðin svigna undan ljúffengum
krækling og öðru lostæti sjávar á
Skeljahátíðinni í Hrísey.
Sunnudagur | Ketilhúsið kl. 14.30
og 16.30: Fyrirlestur í máli og
myndum um kínverska menningu
og sýning á kínverskri leikfimi og
dansi. Unnur Guðjónsdóttir frá
Kínaklúbbi Unnar
Akureyrarkirkja kl. 17: Sumar-
tónleikar; Asgeir Steingrímsson,
trompet, Eiríkur Örn Pálsson,
trompet, Hörður Áskelsson, orgel.
Leikið verður tónverk eftir Jón
Hlpðver Askelsson.^ ___
Doddi hættur í Sjóvá eftir 41 ár í tryggingabransanum
„Einn grét við borðið“
Þórarinn B. Jónsson, Doddi í Sjóvá
eins og hann er gjarnan nefndur,
hefur látið af starfi útibússtjóra Sjó-
vár á Akureyri eftir 41 ár í trygg-
ingabransanum. Síðasti vinnudagur
hans var í gær og í dag tekur Jón
Birgir Guðmundsson við af honum.
Þórarinn verður honum reyndar
innan handar til áramóta.
„Það hefur verið mjög gaman að
vinna fyrir félagið og mér er efst í
huga einlægt þakklæti til yfirmanna
minna í þessi rúmlega 40 ár - ég hef
átt mjög gott samstarf við þá alla.
Ég er líka mjög þakklátur fyrir að
fá að vinna með öllu því góða fólki
sem hér hefur starfað og óska félag-
inu alls hins besta, sem og nýjum
útibússtjóra,“ sagði Þórarinn þegar
Morgunblaðið leit við hjá honum á
skrifstofunni í gær.
Þórarinn segir ótrúlega miklar
breytingar hafa átt sér stað á öllum
sviðum á síðustu fjórum áratugum.
Á sínu sviði nefnir hann að fáir hafi
kaskótryggt bílana sína 1964 vegna
þess hversu dýrt það var. „Það hef-
ur líklega kostað um 10% af and-
virði bílsins, sem voru rosalega
miklir peningar, og þá það gat skipt
sköpum íyrir menn hvort þeir voru í
rétti eða órétti,“ sagði Þórarinn.
, Aleiga manna fólst nefnilega oft í
bílnum á þessum árum. Ég man eft-
ir því að einn viðskiptavinurinn fór
að gráta við borðið hjá mér vegna
þess að það var spurning um aleig-
una fyrir hann hvort hann yrði úr-
skurðaður í rétti eða órétti.“
Þórarinn situr enn í bæjarstjórn
fyrir Sjálfstæðisflokkinn og segist
að minnsta kosti klára kjörtímabilið,
en kosið verður til sveitarstjórna á
næsta ári. „Ég veit ekki hvort ég
verð með af fullri hörku eftir næstu
kosningar. Við sjáum bara til;
kannski verð ég í einhverjum nefnd-
um. Svo gæti landslagið breyst mik-
ið ef sveitarfélög hér í firðinum sam-
einast, bannig að maður veit ekkert
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Þórarinn B. Jónsson sýnir eftirmanninum, Jóni Birgi Guðmundssyni, skrif-
stofuna í gær.„Það hefur verið mjög gaman að vinna fyrir félagið.“
hvemig framtíðin verður.“
Nú þegar hann lætur af störfum
segir Þórarinn mjög marga spyrja
hvað hann ætli að fara að gera.
„Mér finnst eiginlega fáránlegt að
spyrja svona, vegna þess að ég veit
ég mun hafa meira en nóg að gera.“
Hann er t.d. duglegur við að spila
golf og Jón Birgir, sem var móts-
stjóri á nýafstöðnu Arctic Open-
móti, bendir á að Doddi sé með mun
lægri forgjöf en hann, þannig að
hann sé vel liðtækur á golfvellinum.
Þeir komast svo að þeirri sameig-
inlegu niðurstöðu að ekki sé óeðli-
jegt þó að sá eldri sé með lægri forT
gjöf; Þórarinn er nefnilega gamall
landsliðsmaður í golfi. Lék á HM í
sveitakeppni árið 1970, sama ár og
Jón Birgir fæddist.
Þórarinn nefnir af þessu tilefni
dæmi um það sem hann minntist á
áður, að fólk hefði ekld átt mikið í
gamla daga. „Þegar ég fór á HM í
golfi átti ég tvennar buxur, einar til
að spila í og aðrar til að vera í á
kvöldin!"
Jón Birgir var nú síðast aðstoðar-
maður bæjarstjórans á Akureyri og
verkefnastjóri bæjarráðs og þar áð-
ur framkvæmdastjóri mannauðslínu
IMG.________________________