Morgunblaðið - 01.07.2005, Side 35

Morgunblaðið - 01.07.2005, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2005 35 ÞORGEIR HARALDSSON + Þorgeir Haralds- son fæddist á Akranesi 27. desem- ber 1935. Hann and- aðist í Sjúkrahúsi Akraness 21. júní síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Harald- ur Kristmannsson, bifreiðasljóri, f. 2.8. 1893 á Akranesi, d. 13.12. 1973, og Jóna Þorleifsdóttir, hús- móðir, f. 12.5. 1897 á Kvíarholti í Holtum, d. 22.9. 1992. Eldri bróðir Þorgeirs er Helgi Kristmann Haraldsson, f. 13.10. 1933. Kona hans er Ásthild- ur Einarsdóttir, f. 20.3.1933. Hinn 11.12. 1965 kvæntist Þor- geir Guðríði Halldóru Halldórs- dóttur, húsmóður, f. 14.6. 1942 á Akranesi. Foreldrar hennar eru Halldór Guðmundsson, skipstjóri, f. 19.5. 1911, á Akra- nesi, d. 1.3. 1989, og Guðríður Halldórs- dóttir, húsmóðir, f. 9.5. 1915 í Bolungar- vík. Börn Þorgeirs og Guðríðar eru: 1) Jón Þór, vélstjóri, f. 11.8. 1965, maki, Vilborg Helgadóttir, kennari, f. 21.3. 1971. Börn þeirra eru Helgi, f. 27.8. 1997, Eva María, f. 21.3.1999, og dóttir, f. 20.6. 2005. 2) Anna Júlia, hársnyrtimeist- ari, f. 9.4. 1969, maki Alexander Eiríksson, fram- kvæmdasljóri, f. 7.1. 1965. Börn þeirra eru Andri Geir, f. 16.6. 1990, og Ástþór Ýmir, f. 25.3. 1999. 3) Halldór Geir, fram- kvæmdastjóri, f. 6.11. 1970, maki Bryndís Þórarinsdóttir, húsmóðir, f. 26.9. 1971. Börn þeirra eru Okkur böm, tengdabörn og barnabörn langar að minnast í fáum orðum fóður okkar, teiigdaföður og afa sem er nú látinn eftir langa og stranga baráttu við illvígan sjúk- dóm. Geiri eins og við tengdabörnin kölluðum hann var ekki sú mann- gerð sem barði sér á brjóst og ræddi um eigið ágæti. Þeir sem leit- uðu til hans vita manna best hvaða mann hann hafði að geyma. Við sem stóðum honum næst vissum hvaða mannkostum hann var gæddur. I hugum okkar streyma fram margar og ljúfar minningar um góð- an föður, svo sem ferðir í sumarbú- stað fjölskyldunnar þar sem pylsur voru grillaðar á eldi og margt skemmtilegt var brallað. Skíðaferð í Kerlingarfjöll þar sem hann var lík- lega best klæddi skíðamaðurinn í brekkunum, í skyrtu og með bindi. Þar ætlaði hann sér sko ekki að fara á skíði en endaði á að skíða manna mest. Velferð fjölskyldunnar var honum efst í huga og þá ekki síst barna- bamanna. Við minnumst allra þeirra matarboða sem við sóttum á Bjarkargrundina hvort sem var um stórhátíðir eða ekki þar sem hann sat við borðsendann stoltur af börn- um sínum og barnabörnum. Eftir að bamabömunum fjölgaði sat sá elsti með þeim yngstu og minnast þau þeirra stunda með gleði. Alltaf var hann reiðubúinn að rétta fram hjálparhönd og minn- umst við með þakkarhug allrar þeirrar aðstoðar sem hann veitti okkur t.d. þegar við stóðum í hús- byggingum þar sem hann eyddi ófáum dögum við ýmiss konar verk. Um leið opnuðu pabbi og mamma heimili sitt fyrir okkur þannig að við höfðum samastað meðan á hús- byggingum stóð. Fyrir þrettán áram veiktist pabbi af hvítblæði sem hann sigraðist á. í sigurvímunni uppgötvaðist krabba- mein á nýjum stað sem Ijóst var að ekki yrði læknað. Hófst þá bardag- inn að nýju sem skyldi háður með sama krafti og fyrr með það að markmiði að ná sem flestum góðum árum. Það tókst honum því á þess- um tíma náði hann að sjá átta barnabörn bætast í hópinn við þetta eina sem komið var. Níunda barna- barnið, lítil stúlka, fæddist aðeins degi áður en pabbi dó og von er á því tíunda á hverri stundu. Á þess- um tíma náðu þau mamma einnig að ferðast til fjölda landa sem þau höfðu mikið gaman af. Alltaf bar hann veikindi sín með reisn og í hljóði. Alltaf var til ein- hver sem hafði það verr en hann að honum fannst. „Af hverju ætti ég að sleppa frekar en aðrir,“ eru orð sem segja mikið um æðruleysi hans og persónu. Hann fór í gegnum veik- indi sín með reisn, vissi betur en við að hverju stefndi. I öll þessi ár naut pabbi stuðnings mömmu sem stóð við hlið hans sem klettur til hinstu stundar. Hún bar hag hans ávallt fyrir brjósti og sýndi einstaka þolinmæði og um- hyggju í hans garð. Síðastliðnar vikur hrakaði pabba ört og var það okkur fjölskyldunni mikið áfall. Á þeim tíma sýndi fjöl- skyldan mikla samheldni og þegar lokabaráttan hófst var hann um- kringdur ástvinum sínum allt þar til yflr lauk. Hann var sáttur við að kveðja að loknu góðu lífsverki. Okkur fjölskylduna langar að þakka starfsfólki Sjúkrahúss Akra- ness fyrir einstaklega kærleiksríka umönnun. Elsku pabbi, tengdapabbi og afi, hvíl í guðs faðmi, ógleymanleg er ævi þín. Þín verður sárt saknað. Jón Þór og Vilborg, Anna og Alexander, Halldór og Bryndís, Hrönn og Bjarni og barnabörn. Mig langar að minnast afa míns í nokkrum orðum en ég var svo hepp- inn að fá að eiga með honum 15 ár. Afi dó aðeins fimm dögum eftir 15 ára afmælisdaginn minn. Eg man vel þegar ég heimsótti hann daginn fyrir afmælið mitt en þá var hann orðinn mikið veikur en ég vissi ekki þá að hann myndi deyja aðeins nokkrum dögum seinna. Eg kom oft í heimsókn til afa og ömmu og ekki síst þegar ég var í skólanum vegna þess að ég borðaði hjá þeim í hádeginu. Þá töluðum við afi oft saman um allt milli himins og jarðar. Við afi náðum alltaf vel sam- an og minnist ég með söknuði margra góðra stunda með honum. Það er skrítin tilfinning að afi sé ekki lengur á Bjarkargrundinni og hann komi aldrei aftur í afinæli eða mat heim til mín. Elsku afi, ég vona að þú sért kominn á góðan stað þar sem þér líður vel. Eg sakna þín. Þinn Andri Geir. Góður drengur, Þorgeir Haralds- son, er nú allur. Það er með söknuði sem hann er kvaddur hinstu kveðju því sjónarsviptir er litlu samfélagi að þeim öðlingsmanni sem Þorgeir var og verður í minningunni. Örlög- in höguðu því svo að honum var ekki ætlað að njóta í friði daga með konu sinni, fjölskyldu og vinum þeg- ar daglegt amstur var að baki, held- ur beið hans glíma við sjúkdóm sem að lokum hafði betur. Ekki er spurt að réttlæti eða sanngirni þegar sá sjúkdómur knýr dyra sem Þorgeir barðist við, en vonin var sú að Þor- geiri auðnaðist að eiga það ævikvöld sem hann hafði svo sannarlega unn- ið til. Þorgeir Haraldsson var um árabil framkvæmdastjóri og einn eigenda Steypustöðvar Þorgeirs og Helga hf., alinn upp á þeim vettvangi og skilaði alla tíð einstöku og góðu verki. Við starfslok skiluðu hann og Helgi bróðir hans góðu fyrirtæki til sona sinna, sem hafa af áræði þróað vandaða og hugvitsamlega eininga- húsaframleiðslu. Alla tíð voru sam- skiptin við Þorgeir einstök og eft- irminnileg þó svo að hvor þyrfti að Snær, f. 21.12. 1997, Eik, f. 24.10. 2000, og Nói, f. 28.8. 2002. 4) Hrönn, tanntæknir, f. 30.5. 1973, maki Bjarni Friðrik Bragason, há- skólanemi, f. 15.3. 1973. Dóttir þeirra er Þorgerður, f. 19.10. 2003. Þorgeir ólst upp á Akranesi, lærði húsasmíði og vann sem húsa- smíðameistari í nokkur ár, auk þess sem hann ók Ieigubfl. 1963 stofnaði hann ásamt Helga bróður si'num fyrirtækið Vinnuvélar sf., sem þeir ráku til ársins 1967, er þeir keyptu fyrirtækið Fell hf. og sameinuðu fyrirtæki sínu, sem þá breytti um nafn og hét upp frá því Þorgeir og Helgi hf. - steypustöð. Þorgeir var framkvæmdastjóri fyrirtækisins til ársins 1997, en starfaði áfram við það til dauða- dags. Þorgeir sat í stjórnum Sfld- arverksmiðju Akraness hf., Har- aldi Böðvarssyni hf., auk Þorgeirs og Helga hf. Þorgeir var félagi í Oddfellowreglunni, st.nr. 8, Egill á Akranesi, og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum. Utför Þorgeirs verður gerð frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. halda á sínu þegar samið var um kaup á steypu til gatnagerðar og fleiri verkefna. Ekki síður voru það eftirminnilegir tímar að sitja með Þorgeiri í stjórnum Heimaskaga hf. og Síldar- og fiskimjölsverksmiðju Akraness hf. á tímum breytinga og margar ánægjustundir lifa í minn- ingunni frá öðrum góðum samskipt- um og samverustundum. Þorgeir var alla tíð áhugamaður um sam- félag sitt á Akranesi og vildi því allt hið besta. Hann var maður ráðholl- ur og glöggur, sem kom skoðunum sínum á framfæri af einstakri ljúf- mennsku, en þó ætíð þannig að hlustað var eftir sjónarmiðum hans og eftir þeim tekið. Fráfall Þorgeirs, er öllum sem hann þekktu, bæði efni sorgar og saknaðar. Eg sendi því þessa hinstu kveðju í fátæklegum orðum og votta Dódó, börnum Þorgeirs og fjöl- skyldunni allri dýpstu samúð. Geng- inn er góður drengur sem skilur eft- ir sig farælt og gjöfult lífsstarf, unnið af dugnaði, hlýju og alúð. Megi blessun fylgja minningunni um Þorgeir Haraldsson. Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi. Eg hrökk illilega við þegar ég hitti Halldór Þorgeirsson þriðjudag- inn 21. júní sl. á vinnustað mínum við Suðurgötu á Akranesi og hann sagði mér að faðir hans, Þorgeir Haraldsson, hefði látist þá um nótt- ina. Eg vissi að Þorgeir hafði átt við veikindi að stríða undanfarin ár en hafði ekki gert mér grein fyrir að þau væra orðin svona alvarleg. Eg kynnist Þorgeiri fyrst þegar ég var starfsmaður Akraneskaup- staðar fyrir mörgum árum. Síðan störfuðum við saman í Oddfellow- reglunni og áttum saman viðskipti, þar sem ég hef verið umboðsmaður Olís hf. á Akranesi mörg undanfarin ár. Þorgeir var einn af þessum „orig- inal“ Skagamönnum. Honum var ekkert óviðkomandi og hafði mikinn metnað fyrir hönd Akraness og vildi hag bæjarins sem mestan og best- an. Hann hafði m.a. mikinn áhuga á mannlífinu hér á Skaga og þá ekki síst á atvinnumálum enda rak hann ásamt bróður sínum um áraraðir eitt myndarlegasta fyrirtækið á Akranesi, Steypustöð Þorgeirs & Helga hf. Þorgeir sat í stjórn nokkurra fiskvinnslufyrirtækja hér á Akra- nesi. Fyrst hjá Síldar- og fiskimjöls- verksmiðju Akraness hf. og Héima- skaga hf. og síðar í stjóm Haraldar Böðvarssonar hf. um áraraðir. Þeir hafa sagt mér það þeir Óli heitinn Kr. Sigurðsson, fyrrverandi for- stjóri Olís hf., og Einar Benedikts- son, forstjóri Olís hf., sem sátu með Þorgeiri í stjórn fyrrnefndra fyr- irtækja, að hann hafi alltaf haft mikinn áhuga á að reksturinn gengi sem best í þessum fyrirtækjum, bæjai-búum og Akraneskaupstað til góðs og hann hafi verið mjög virkur og áhugasamur stjórnarmaður. Ég ætla mér ekki að rekja ævi- feril Þorgeirs Haraldssonar. Það gera aðrir sem betur til þekkja. Ég vil hins vegar þakka honum trúnað við mig í mínu starfi sem bæjarfull- trúa þar sem hann gaf mér margar hreinskiptnar ábendingar um það hvað mætti betur fara í rekstri okk- ar bæjarfélags. Þá vil ég einnig leyfa mér f.h. Olíuverslunar Islands hf. að þakka Þorgeiri Haraldssyni fyrir einstakan trúnað og velvilja í garð fyrirtækisins. Það hefur verið ómetanlegt að hafa viðskiptavin eins og Þorgeir Haraldsson og fyr- irtæki hans í viðskiptum í yfir 50 ár, sama á hverju hefur gengið í þjóð- félaginu þá hefur okkur hjá Olíu- verslun Islands hf. alltaf verið sýnt sama traustið. Sá sjúkdómur er harður sem tek- ur Þorgeir Haraldsson frá eigin- konu og fjölskyldu, svona háan, sterkan og myndarlegan mann. Við Sigga vottum Dódó, börnunum, fjöl- skyldu og ættingjum Þorgeirs okk- ar dýpstu samúð og biðjum góðan Guð að blessa þau um ókomna tíð. Gunnar Sigurðsson. Fallinn er í valinn langt um aldur fram Þorgeir Haraldsson húsa- smíðameistari. Hann hafði um langt árabil, ásamt bróður sínum Helga, rekið steypustöð undir nafninu Þor- geir og Helgi. Reksturinn gekk með miklum ágætum. Fyrirtækið óx og dafnaði í höndum þeirra. Nú á seinni árum bættu þeir við fram- leiðsluna steypueiningum sem þeir nefndu „Smellinn“ og urðu þær mjög vinsælar. Synir þeirra beggja hafa nú tekið við rekstrinum. Þorgeir hafði um margra ára skeið átt við illvígan sjúkdóm að stríða sem að lokum lagði hann að velli. Þorgeir Haraldsson var karl- menni svo mikið að af bar. Hann var vinafastur maður og lagði öllum góðum málum lið. Hann var grand- var í orðum. Aldrei heyrði ég hann hallmæla nokkrum manni. Það var gott að eiga slíkan öðling að vini. Um tuttugu ára skeið höfum við nokkur hópur úr Oddfellowreglunni á Akranesi ferðast saman. Nefndum við okkur „Apavatnshópinn" sökum þess að fyrstu árin, sem við ferð- uðumst saman, gistum við í bústað símamanna við Apavatn. Við höfum lagt leið okkar til ýmissa staða víðs vegar um land og notið samvista tvo til þrjá daga í senn. Þessar ferðir eru okkur ógleymanlegar. I ferð- unum var Þorgeir hrókur alls fagn- aðar. Fyrir ferðirnar skemmtilegu vil ég fyrir hönd Apavatnshópsins þakka honum góðar og glaðar stundir sem geymast munu í minni okkar reglubræðra hans. Dódó mín. Missir þinn er mikill. Þið Þorgeir voruð óaðskiljanleg. Ævinlega voruð þið eins og nýtrú- lofuð. Mættu margir taka sér til fyrirmyndar einstaklega fallegt samband ykkar. Ég veit að minn- ingin um mikinn sómadreng mun ylja þér á þeim erfiðu stundum sem framundan eru. Við biðjum góðan Guð að styrkja þig og blessa um ókomna tíð. Við vottum þér, börnum ykkar, barnabörnum og öðrum ættingjum og vinum dýpstu samúð. Fyrir hönd Apavatnshópsins, Hörður Pálsson. Góður vinur, Þorgeir Haraldsson, er látinn. Hann hefur fengið hvíld frá erf- iðum veikindum. Það er ekki ætlun mín að rekja ævi Þorgeirs heldur færa honum þakkir fyrir samfylgd- ina síðustu áratugina. Þorgeir var vinur vina sinna. Jafnan var hann tilbúinn að aðstoða og veita liðsinni ef svo bar við. Rétt- lætiskennd var honum í blóð borin og trúr var hann hverju sem hann tók sér fyrir hendur. Stundum verð- ur vinátta manna svo sterk að hún virðist órjúfanleg hvað sem á dynur. Þannig var okkar vinátta. Þegar ég lít til baka minnist ég margra skemmtilegra stunda er við áttum saman. Við ræddum málin oft á léttum nótum og létum allt flakka sem upp í hugann kom. Okkar samstarf hófst með því að við byggðum saman nokkur hús og varði það samstarf í ein fimm ár. Þá skildust leiðir er þeir bræður stofn- uðu Steypustöðina Þorgeir og Helgi hf. og ráku þeir hana í mörg ár. Okkur Ingu fannst ánægjulegt að umgangast þau hjón Guðríði og Þorgeir ásamt Katrínu og Braga en þessi hópur hefur haldið saman í hartnær fjörutíu ár. Hópurinn hefur farið tvist og bast yfir sumarið, en haustið og veturinn tengt okkur saman á ný. Við minn- umst leikhúsferða, Vínartónleika, gönguferðanna í Garðalundi í hart- nær tuttugu ár. Einnig ferðanna er- lendis, Þýskaland, París, Vínarborg og Mallorka, allt voru þetta dýrðar stundir og þakka samveruna. Þorgeir gekk til liðs við Oddfell- owregluna 1970. Þar undi hann hag sínum mjög vel, enda er þetta fé- lagsskapur sem hentaði honum. Hann var kjörinn til margvíslegra trúnaðarstarfa innan Reglunnar og gegndi þeim af mikilli samvisku- semi. Reglan þakkar honum af al- hug öll þau góðu störf sem hann innti af hendi fyrir st. nr. 8, Egil. Þorgeir var mikill gæfumaður í sínu fjölskyldulífi. Hann eignaðist góða konu sem stóð við hhð manns síns í blíðu og stríðu. Þau eignuðust fjögur börn og barnabörnin eru að fylla tuginn. Það er mikill missir að missa ást- vin en minningin um góðan mann og fóður lifir. Við í gönguhópnum vottum fjöl- skyldunni og öðrum nánum ættingj- um dýpstu samúð okkar. Þórhallur Björnsson. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Við vottum Dódó, Jóni Þóri, Önnu Júlíu, Halldóri Geir, Hrönn og fjöl- skyldum þeirra okkar dýpstu samúð á þessum sorgartímum. Drottinn blessi ykkur öll og minningu Þorgeirs. Starfsfólk Þorgeirs & Helga, Akranesi. REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Sfieyar ancfíaí der að fiöncfum Qnnumst aíla þœtti útjararinnar m: UTFARARSTOFA \ S KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.