Morgunblaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2005
MORGUNBLAÐIÐ
_____________________FRÉTTIR____________________
Gagiirýiiir fréttaflutning af Dettifossmáli
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Erni
Gunnlaugssyni, eiganda fyrirtækis-
ins Bindis ehf.:
„Tilefni bréfs þessa er fréttaflutn-
ingur DV, Fréttablaðsins og Stöðvar
2 af dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í
svokölluðu Dettifossmáli sem kveð-
inn var upp föstudaginn 24. júní síð-
astliðinn. Undirritaður er eigandi
fyrirtækisins Bindis ehf. sem dregist
hefur inn í fréttaflutning af þessu
máli án þess þó að eiga aðild að því.
Ofangreindir fjölmiðlar skýrðu
frá umræddum dómi með þeim
hætti að skilja mátti að fram-
kvæmdastjóri Bindis ehf. Eiður
Thorarensen hefði verið dæmdur í
40.000 króna sekt vegna aðildar að
smygli á fíkniefnum sem falin voru í
loftpressu sem send var til landsins
á nafn Bindis ehf. sem móttakanda.
I fréttaflutningi var því jafnvel lýst
að framkvæmdastjórinn hefði skipu-
lagt innflutninginn og ætlað að taka
á móti sendingunni en hefði hins
vegar hætt við þegar hún barst til
Islands og væri hin milda refsing af
þeim sökum. Sé dómurinn hins veg-
ar lesinn þá mega menn skilja að
sekt þessi er vegna vörslu 5 gramma
af hassi sem ákærði vísaði lögreglu á
við húsleit.
Eftir að hafa kynnt sér umræddan
dóm veltir maður því fyrir sér hvem-
ig fólk sem hefur atvinnu sína af því
að flytja fréttir geti lagst svo lágt að
skýra svo ranglega og villandi frá
staðreyndum að ekki verði hjá því
komist að neytendur geri sér kol-
ranga hugmynd um þá atburði sem
fjallað er um og raunverulega áttu
sér stað.
Staðreyndir málsins em eftirfar-
andi:
Eftirfarandi ákæraliðir eru teknir
úr dómi Héraðsdóms Reykjavíkur:
Ákæmliður 1:
Ákærði, Eiður er ákærður fyrir að
hafa notað aðstöðu sína hjá Bindi
ehf. og samþykkt að umrædd fíkni-
efni yrðu send til landsins falin í
vörusendingu merktri Bindi ehf. og
hafí hann átt að sækja umrædda
sendingu og sjá um að hún fengi toll-
afgreiðslu.
Niðurstaða ákæmliðar 1:
... er ósannað að ákærði hafi gerst
sekur um háttsemi þá sem hann er
ákærður fyrir í þessum kafla ákær-
unnar og ber því að sýkna hann.
Ákæruliður 5:
Ákærða, Eiði er gefið að sök brot
gegn lögum um ávana- og fíkniefni
með því að hafa haft í vörslum sínum
5,06 g af hassi sem ákærði framvís-
aði lögreglu við húsleit.
Niðurstaða ákæruhðar 5:
Sannað er með skýlausri játningu
ákærða fyrir dómi... Er brot ákærða
rétt fært til refsiákvæða í ákærunni.
Nefndir fjölmiðlar í bréfi þessu
hafa unnið ötullega að því allt frá því
að umrædd fíkniefni fundust við leit
tollvarða síðastliðið sumar og áður
en niðurstaða Héraðsdóms Reykja-
víkur lá fyrir að gera Bindi ehf. og
framkvæmdastjóra þess tortryggi-
legan í augum neytenda sinna með
nákvæmum lýsingum varðandi fyr-
irtækið, nafnbirtingum og jafnvel
myndbirtingum. Eftir að umræddur
dómur féll hafa fyrrgreindir fjöl-
miðlar ekki aðhafst neitt til að skýra
jafnnákvæmlega frá niðurstöðu
dómsins um hver þáttur fyrirtækis-
ins og framkvæmdastjórans var eins
og þegar máhð var til rannsóknar og
í málflutningi hjá Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Fréttaflutningur á þeim nótum
sem hér er lýst getur aðeins átt að
þjóna öðru af eftirfarandi tvennum
tilgangi nema hvorutveggja sé:
1) Að segja sögur sem selja fjöl-
miðlana vel og láta sig þá litlu
skipta staðreyndir eða raunveru-
legt innihald sögunnar. SMkt á að
sjálfsögðu ekkert skylt við frétta-
mennsku en á miklu frekar heima
í jólabókaflóðinu með reyfurum á
borð við þá sem Arnaldur Indr-
iðason hefur sent frá sér.
2) Að ganga erinda fyrirtækja
með eignarhaldi tengdu umrædd-
um fjölmiðlum sem selja vöm í
samkeppni við Bindi ehf. í því
augnamiði að fá viðskiptamenn
Bindis ehf. til að fá andúð á fyr-
irtækinu og beina viðskiptum sín-
um annað og helst til sinna eigna-
tengsla. Hafi þetta verið
tilgangurinn hefur fyrrgreindum
fjölmiðlum orðið vel ágengt. Rétt
er að þeir sem því hafa valdið
skoði sína samvisku eftir að hafa í
raun fellt dóm á undan þeim dóm-
stólum sem réttarríki okkar bygg-
ir á.
Til þeirra fjölmiðla sem hér eiga
hlut að máh vil ég beina þeirri kröfu
minni að þeir birti umfjöllun um nið-
urstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í
Dettifossmálinu á jafnáberandi hátt
og fréttir af málinu meðan það var í
rannsókn og nafn Bindis ehf. var
dregið að ósekju inn í smygl á fíkni-
efnum til landsins. Þess er vænst að
fréttaflutningur þessi verði með
þeim hætti að neytendum fjöl-
miðlanna sé ljóst af umfjöllun þeirra
að framkvæmdastjóri Bindis ehf. var
sýknaður af þeim ákærulið sem tek-
ur á smygli fíkniefnanna til landsins.
Þá gerir undirritaður kröfu til þess
að Bindir ehf. sé hreinsað af þeim
sögusögnum fyrrnefndra fjölmiðla
að hafa staðið með einhverjum hætti
að innflutningi fíkniefna en eins og
fram kemur í dómi héraðsdóms er
ekkert sem styður það sem umrædd-
ir fjölmiðlar gáfu í skyn meðan á
rannsókn málsins stóð.
Eg vil benda hlutaðeigandi
„fréttamönnum" á að dóm þennan er
hægt að nálgast hjá Héraðsdómi
Reykjavíkur og væri ekki úr vegi að
þeir kynntu sér efni hans og fjölluðu
síðan um hann í samræmi við það
sem þar stendur. Þá er undirritaður
meira en fús til að útvega þessum að-
ilum dóminn sé einhverjum vand-
kvæðum bundið að nálgast hann hjá
Héraðsdómi Reykjavikur.
Undirritaður vill taka það fram að
hann vill ekki fyrir nokkurn mun
verja gjörðir þeirra sem standa að
innflutningi á fíkniefnum og leggja
líf fjölmargi'a einstaklinga í íúst og
hefur það lengi verið skoðun hans að
jafnvel dauðadómur er of væg refs-
ing fyrir þessa þrjóta. Á hinn bóginn
getur óvandaður fréttaflutningur af
glæpamálum gert líf þeiiTa sem
dregnir hafa verið inn slíka rann-
sókn án þess að vera sekir að hreinu
helvíti. Hinum seku er hins vegar
ekki vorkunn. Menn ættu þá einnig
að velta fyrir sér hve mikla ábyrgð
einstakir þingmenn og ráðherrar
bera á hömlulausum innflutningi
fíkniefna en það er fyrst og fremst
sökum þeirra tómlætis að fíkniefni
flæða inn í landið nánast án hindr-
ana. í þessu sambandi vil ég vísa til
gildandi refsinga í SA-Asíu saman-
borið við þann gamanleik sem hafður
er uppi í þessum málum hér á landi.
Þá er það spurning hvað væri
hæfileg refsing fyrir þá mannorðs-
morðingja sem í nafni fréttamennsk-
unnar kjósa að segja spennusögur í
formi frétta í stað þess að skýra satt
og rétt frá staðreyndum á vandaðan
hátt. Það getur verið alveg jafn lúa-
legt að segja ekki allan sannleikann
eins og að ljúga. Fréttamenn sem og
allir aðrir ættu að hafa það í huga að
menn eru saklausir þar til sekt
þeirra er sönnuð.
Svo virðist sem munurinn á frétta-
flutningi Morgunblaðsins og Ríkis-
sjónvarpsins annars vegar og ofan-
gi-eindum fjölmiðlum hins vegar
liggi í því að hinir fyirnefndu bera
virðingu fyrir æru manna og kunna
sér hóf en hinir síðari láta sig slíkt
engu varða sjái þeir hagnað eða
frama fyrir sjálfan sig. Slíkur frami
er þó illa fenginn og verður þá helst
til þess fallinn að hinir sömu fái að
brenna í helvíti með sölumönnum
dauðans þegar þeir kveðja þennan
heim. Og þar hefur skrattinn svo
sannarlega hitt ömmu sína.“
Raðauqlýsinqar
Atvinnuauqlýsinqar
Reykjavíkurborg
Velferðarsvið
Forstöðumaður
Laust ertil umsóknartímabundið starf forstöðu-
manns Gistiskýlis fyrir heimilislausa.
Starfið er til 2ja ára.
Gistiskýlinu er ætlað að veita heimilislausum
Reykvíkingum næturgistingu og samastað í
skamman tíma, meðan verið er að vinna að
lausn á félagslegum vanda þeirra sem þangað
leita.
Óskað er eftir starfsmanni sem hefur reynslu
af því að vinna með fólki, sem á við áfengis-
og vímuefnavanda að stríða. Viðkomandi þarf
að geta starfað sjálfstætt og skipulega.
Áhersla er lögð á góða samskiptahæfni, trúnað
og fagleg vinnubrögð.
Reynsla af vinnu við félagslega þjónustu
æskileg.
Launakjör eru skv. kjarasamningi Reykjavíkur-
borgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Skriflegar umsóknir berist Velferðarsviði
Reykjavíkurborgar, Tryggvagötu 17, merktar:
„Forstöðumaður", fyrir 28. júlí nk.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. septem-
ber nk.
Nánari upplýsingar veita EllýA. Þorsteinsdóttir,
skrifstofustjóri velferðarþjónustu, og Stefanía
Sörheller, verkefnisstjóri, í síma 411 9000.
Netföng: elly.alda.thorsteinsdottir@reykjavik.is
og stefania.sörheller@revkiavik.is .
»
Sumarafieysing/
framtíðarstarf
Okkur vantar duglegt fólk í sumarafleysingu
við uppvask á kvöldin og framtíðarstarf við
ræstingar og þvottahús.
Upplýsingar á staðnum og í síma 552 5700.
Uppboð
Uppboð
Framhald uppboös á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Nesvegur 100, 010201, Seltjarnarnesi, þingl. eig. Björk Eiösdóttir,
geröarbeiðendur íbúðalánasjóöur og Sjóvá-Almennar tryggingar
hf., þriöjudaginn 5. júlí 2005 kl. 10:30.
Seljabraut 22, 205-5647, Reykjavík, þingl. eig. Ármann Gestsson,
gerðarbeiöendur íbúöalánasjóöur, Seljabraut 22 húsfélag og
Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 5. júlí 2005 kl. 11:30.
Sýslumaðurinn f Reykjavík,
30. júní 2005.
Fyrirtæki
Til sölu fasteignasala
Áhugasamir sendi upplýsingar á
augl.deild Mbl. eða á box@mbl.is merktar:
„Fasteignasala —17320".
upplýsingar er að finna á mbl.is/upplýsingar
569 1100
Nauðunqarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir
Bogasíða 1, Akureyri (214-5283), þingl. eig. Gunnar Ævar Jónsson
og Kristín Jóna Guömundsdóttir, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfest-
ingarbankinn hf., íbúðalánasjóður, sýslumaðurinn á Akureyri og
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, miðvikudaginn 6. júlí 2005 kl. 10:30.
Fossbrún 6a, stofnhænsnahús 1,01-0101, Dalvíkurbyggð (215-6635),
þingl. eig. Marval ehf., gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð, Lánasjóður
landbúnaðarins og Vátryggingafélag íslands hf., þriðjudaginn
5. júlí 2005 kl. 14:00.
Fossbrún 6b, stofnhænsnahús II, 03-0101, Dalvík (225-8513), þingl.
eig. Marval ehf., gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð, Lánasjóður land-
búnaðarins og Vátryggingafélag íslands hf., þriðjudaginn 5. júlí
2005 kl. 14:15.
Hafnarbraut 11, sláturhús, 01-0101, Dalvíkurbyggð (226-1795), þingl.
eig. Marval ehf., gerðarbeiðandi Dalvíkurbyggð, þriðjudaginn
5. júlí 2005 kl. 15:15.
Hafnarbraut 15, iðnaðarhús, 04-0101, Dalvíkurbyggð (215-4891),
þingl. eig. Marval ehf, gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð og Vátrygg-
ingafélag íslands hf., þriðjudaginn 5. júlí 2005 kl. 15:30.
Hafnarbraut 7, iðnaður 07-0101, Dalvíkurbyggð (215-4882), þingl.
eig. Marval ehf., gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð og Lánasjóður
landbúnaðarins, þriðjudaginn 5. júlí 2005 kl. 15:00.
Hafnarstræti 20, íb. 01-0301, Akureyri (214-6872), þingl. eig. Inga
Mirra Arnardóttir og Jórunn Viggósdóttir, gerðarbeiðandi Toll-
stjóraembættið, miðvikudaginn 6. júlí 2005 kl. 11:00.
Hamarstígur 27, Akureyri (214-7079), þingl. eig. Ársæll Kristófer
Ársælsson og Aðalsteina Erla L. Gísladóttir, gerðarbeiðendur Aku-
reyrarkaupstaður, Húsasmiðjan hf. og íbúðalánasjóður, miðvikudag-
inn 6. júlí 2005 kl. 10:00.
Sveinbjarnargerði IID, gistihús, 01-0101, Svalbarðsstrandarhreppi
(216-0407), þingl. eig. Sveitahótelið ehf., gerðarbeiðandi sýslu-
maðurinn á Akureyri, þriðjudaginn 5. júlí 2005 kl. 11:00.
Ytra-Holt, lóð, kjúklingahús 01-0101, Dalvíkurbyggð (225-3053),
þingl. eig. Marval ehf., gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð og Lána-
sjóður landbúnaðarins, þriðjudaginn 5. júlí 2005 kl. 16:00.
Sýslumadurinn á Akureyri,
30. júní 2005.
Harpa Ævarsdóttir, ftr.
Félaqslíf
ferðafélag
Islands
Morkinní G • simi S6B 2S33 • www.fi.is
Laugardagurínn 2. júlí:
Bjarnarfell - Biskupstungum
- dagsferð, sögu- og skemmti-
ferð, ókeypis þátttaka - eigin bil-
ar - lagt af stað frá Neðri-Dal í
Biskupstungum, skammt frá
Geysi í Haukadal.
Fararstjóri Ingimar Einarsson,
sögumaður Arnór Karlsson.
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100