Morgunblaðið - 01.07.2005, Qupperneq 46
46 FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2005
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ
Þóroddur
í FUGL
LISTAMAÐURINN Þóroddur
Bjarnason opnar sýningu í sýning-
arrými FUGLs, Félags um gagn-
rýna list, tengdu verslun Indriða á
Skólavörðustíg 10, í dag kl. 18.
I fréttatilkynningu um sýninguna
segir: „Þóroddur er þekktur fýrir að
fara ekki troðnar slóðir í list sinni,
heldur nýta sér það hráefni sem þarf
til að hafa áhrif á mannlegt sam-
félag, hvort sem það felst í því að
spjalla við fólk til að reyna að vekja
álit þess og almennar skoðanir,
bjóða því upp á þríhjólaferðir um
sýningarsalinn eða halda sýningu
sem byggir áþví að láta annan lista-
mann sýna.“ I kynningunni segir að
list Þórodds fjalli öðru fremur um
samskipti og samspil fólks og mögu-
leikann á því að hafa áhrif á það án
þess að beita þvingun á neinn hátt.
„í verki sínu í FUGLi leitar Þór-
oddur enn á ný mið, ineð tilvísun í
bibliusögulegt minni. I verkinu
styðst hann við söguna um toll-
heimtumanninn Sakkeus og sam-
skipti hans við Krist. í verkinu nýtir
Þóroddur rýmið til að lýsa á mynd-
rænan hátt í orðum þeirri stundu
þegar ómöguleg samskipti og teng-
ing myndast, þegar eitt orð eins og
klýfur mannfjöldann til að skapa
grundvöll fyrir samræðu og sam-
skipti."
Sýningin stendur til 31. júlí og er
opin frá mánudegi til föstudags kl.
10-18 og á laugardögum kl. 11—16.
-----------------
Ráðin prófess-
orvið LHÍ
SIGRÍÐUR Sigurjónsdóttir hefur
verið ráðin prófessor í þrívíðri hönn-
un við hönnunar- og arkitektúrdeild
Listaháskóla Islands. Sigríður lauk
B A-gráðu í þrívíðri hönnun frá West
Surrey College of Art & Design árið
1992 og MA-gráðu í hönnun frá
Central Saint Martins College of Art
and Design árið 1999.
Sigríður hefur
víðtæka reynslu á
sviði hönnunar,
bæði erlendis og
hérlendis. A ár-
unum 1992-98
rak hún eigin
hönnunarstofu í
Reykjavík og tók
að sér fjölbreytt
verkefni. Við
CSM Design
Laboratory í
London (1998-99) vann Sigríður að
verkefni sínu Framtíðarvasanum,
sem hlaut heimsathygli, og á ár-
unuml999-2001 starfaði hún hjá fyr-
irtækinu E-City í Amsterdam að
rannsóknarverkefnum sem tengjast
gagnvirkri sjónvarpsnotkun al-
mennings. A sama tíma kenndi hún
hönnun við Rietveldt-akademíuna i
Amsterdam. Frá 2001 til 2003 vann
Sigríður hjá fyrirtækinu Red Fig í
London.
Hún hefur haldið einkasýningar á
verkum sínum hérlendis og tekið
þátt í fjölda samsýninga hérlendis
og erlendis.
A liðnum vetri gegndi hún starfi
fagstjóra 1 þrívíðri hönnun við LHI.
Sigríður
Sigurjónsdóttir
Sumarkvöld við
orgelið í
■Hallgnmskirkju
2. júífkl. 12.00:
A^attias Wagc»>, ocgcl
3. júlí kl. 20.00:
3ænski spunasnillingui'inn
A4«ttias Wagcr lcikuc verk
m.a. cftir Bach, 'Pact og
Mozart af fingrum fvam
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju
Þremenningarnir Eiríkur Örn Pálsson trompetleikari, Hörður Áskelsson
orgelleikari og Ásgeir Steingrímsson trompetleikari munu koma fram á
fyrstu Sumartónleikum í Akureyrarkirkju í ár á sunnudaginn kemur.
AF LISTUM
Vala Ósk Bergsveinsdóttir
Það verður sannkölluð tón-
leikahátíð á Akureyri frá
og með næsta sunnudegi,
því þá hefjast árlegir Sum-
artónleikar í Akureyrarkirkju í
nítjánda sinn. Fjölbreyttir og sum-
arlegir tónar munu hljóma um bæ-
inn og bæði heima- og ferðamenn
leggja leið sína í kirkju.
Fyrstu tónleikarnir voru haldn-
ir sumarið 1987 og næsta sumar
verða þeir orðnir eitt hundrað
talsins.
Eins og svo oft áður sækja góðir
gestir hátíðina heim í ár og báðu
forsvarsmenn hennar Jón Hlöðver
Áskelsson að semja verk til frum-
flutnings á hátíðinni í tilefni af
sextugsafmæli sínu í ár.
Afmælisverkið, Da Pacem Dom-
ine, verður leikið í hátíðarútgáfu á
fyrstu tónleikunum, nú á sunnu-
dag, í flutningi, orgelleikarans og
bróður Jóns, Harðar Áskelssonar
og trompetleikaranna Ásgeirs
Steingrímssonar og Eiríks Arnar
Pálssonar.
• • •
ríeykið, Hörður, Ásgeir og Ei-
ríkur, hefur starfað saman
síðan 1993 í Hallgrímskirkju og
síðan hafa þeir spilað við fjölmörg
tækifæri.
Sumartónleikar í Akureyr-
arkirkju hafa verið í samstarfi við
Sumarkvöld við orgelið í Hall-
grímskirkju undanfarin ár og svo
er einnig nú þegar orgelleikarinn
Matthias Wager frá Svíþjóð, Sig-
urður Flosason saxófónleikari og
Gunnar Gunnarsson orgelleikari
koma fram.
Hrefna Harðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Sumartónleikanna,
segir að alltaf sé reynt að hafa
dagskrána sem fjölbreyttasta og
frá öllum tímum tónlistarsög-
unnar svo fólk með ýmiss konar
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Jón Hlöðver Áskelsson tónskáld.
JTónleikarnir hafa allt-
af verið vel sóttir og fólk
er farið að hlakka til 1
maí ef ekki fyrr. £
tónlistarsmekk geti komið og
hlustað.
Tveir kórar munu halda tón-
leika í ár, kór Áskirkju undir
stjórn Kára Þormar og Hymnodia,
tveggja ára gamall kammerkór
Akureyrarkirkju undir stjórn Ey-
þórs Inga Jónssonar.
Áskirkjukórinn var tilnefndur
til Islensku tónlistarverðlaunanna
í ár fyrir geisladiskinn Það er
óskaland íslenskt og hlaut disk-
urinn almennt mjög lofsverða
dóma. I kórnum eru fjölmargir
Norðlendingar sem koma nú á
heimaslóðir til að syngja.
• • •
að er ótrúlegt hvað margir
halda mikilli tryggð við Sum-
artónleikana í Akureyrarkirkju ár
eftir ár. Tónleikarnir hafa alltaf
verið vel sóttir og fólk er farið að
hlakka til í maí ef ekki fyrr. Við
fáum jafnvel fyrirspurnir um hvað
muni vera á dagskránni löngu áð-
ur en tónleikaröðin hefst,“ segir
Hrefna.
Tónleikarnir eru bæði vel sóttir
af Islendingum og útlendingum og
fjölmargir innlendir ferðamenn
koma ár hvert enda er grundvall-
arhugmynd tónleikahaldara sú að
bæði heimamenn og ferðamenn
geti hlýtt á fjölbreytta og fallega
tónlist yfir hásumarið.
Akureyri er mikill menning-
arbær ekkert síður en höf-
uðborgin og það sést vel á vin-
sældum og Iangri hefð
Sumartónleikanna. Sumir sem þar
fram koma eru ekki að heimsækja
tónleikanna í fyrsta sinn og þar að
auki dregur hátíðin að sér nýja
gesti árlega sem eru spenntir að
spila fyrir Norðlendinga og aðra
gesti á fallegum sumarkvöldum.
valaosk@mbl.is
Ljóðahátíð um verslunarmannahelgina
Morgunblaðið/Arnaldur
Það eru Nýhilistar sem standa fyrir ljóðahátíðinni. Eiríkur Örn Norðdahl, forsprakki hópsins, er fyrir miðju.
ÚTIHÁTÍÐIR eru alls ekki það eina
sem landsmönnum stendur til boða
um verslunarmannahelgina í ár.
Þeim, sem vilja forðast umferð-
arþunga og fjöldasöng og stunda í
staðinn menningarlega afþreyingu
innan borgarmarkanna, stendur til
boða að taka þátt í ljóðahátíð Nýhil-
hópsins.
Nýhil mun standa fyrir upplestr-
arkvöldum og málþingi 29. og 30.
júlí næstkomandi.
Nýhil-maðurinn Eiríkur Örn
Norðdahl segir hugmyndina hafa
komið fram í september á síðasta
ári og undirbúning hafa farið á fullt
um áramótin.
Sjö erlend 1jóðskáld munu koma
fram á hátfðinni ásamt einhverjum
íslenskum. Þau erlendu skáld sem
staðfest hafa komu sína á hátíðina
eru Bretinn og pönkskáldið Benny
Childish, Bandaríkjamaðurinn
Jesse Ball sem þekktur er fyrir
ljóðabók sína March Book, Christ-
ian Bök frá Kanada, höfundur ljóða-
bókarinnar Eunoia, og hin sænsk/
finnska Katarina Gripenberg.
Þá verður einnig boðið upp á tón-
listaratriði þar sem m.a. Mugison,
Fimmta herdeildin og Reykjavík
munu koma fram.
Upplestrarkvöldin fara fram í
Klink og Bank en málþingið verður
haldið í Norræna húsinu og þar
munu bæði fara fram pallborðs-
umræður á ensku milli íslenskra og
erlendra ljóðskálda ásamt því að
staða íslenskrar samtímaljóðlistar
verður rædd á íslensku.
Það eru menntamálaráðuneytið
og Reykjavíkurborg sem styrkja
Ijóðahátíðina sem annars er al-
gjörlega skipulögð af Nýhil-
hópnum.
Nýhil hefur starfað í fjögur ár, að
sögn Eiríks, og stendur reglulega
fyrir ljóðakvöldum í Reykjavík og í
Berlín. Þá hefur Nýhil gefið út ýms-
ar bækur, þar á meðal Af stríði og
Af okkur en þriðja Af-bókin, Af ljóð-
um, mun koma út rétt fyrir hátíð-
ina.
Eiríkur segir öll erlendu ljóð-
skáldin mjög spennt fyrir því að
koma til landsins og sér hann fram á
mikla og skemmtilega ljóðahelgi.
Snörurnar
og stórhljómsveit í kvöld
Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil s. 581 2455
www.krit tglukrain.is