Morgunblaðið - 01.07.2005, Side 56
&LYFJA
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBSÍF 5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTMMBUS, AKUREYRI: KAUmNGSSTRÆTI 1
FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2005
VERÐ í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
' Bændur deila við Land-
græðslu um eignarlönd
Eftir Silju Bjðrk Huldudóttur
silja@mbl.is
DEILUR hafa risið milli bænda í Rangárþingi
ytra og Landgræðslu rfldsins þar sem bændur
fara þess á leit að þeim verði skilað jörðum eða
hluta úr jörðum sem Landgræðslan leysti til sín
með samningum árið 1938 í því skyni að græða upp
landið.
„Raunar eru áhöld um það að þessi gjömingur
haldi yfir höfuð, því það er ekkert frumrit til af
þessum samningi. Þetta virðist vera algjörlega ein-
hliða uppskrifað af hálfu Landgræðslunnar og síð;
an farið með það til þinglýsingar hjá sýslumanni. I
þessum samningi gerði Landgræðslan ráð fyrir
því að eigendur þessara jarða afsöluðu sér
ákveðnum hiuta af jörðum sínum til Landgræðsl-
unnar til þess að hún myndi græða landið upp,“
segir Viðar Steinarsson, bóndi á Kaldbaki. Hvorki
finnist frumrit af samningum né eiginhandarskrift
þeirra bænda sem um ræðir. „I munnmælum
þeirra manna sem málið um ræðir þá var alltaf
Fullkomlega löglegt
„LANDEIGENDUR á Kald-
baki hafa óskað eftir að fá
hluta af landi Víkingslækjar
sem afhent var Sand-
græðslu Islands til fullrar
eignar og umráða árið
1938,“ segir Sveinn Runólfs-
son landgræðslustjóri. „Það
er samdóma álit landbún- Sveinn Runólfsson
aðarráðuneytis og Landgræðslu ríkisins að
þetta hafi verið fullkomlega löglegur gjörn-
ingur á sfnum tíma og að umrætt land sé því í
eigu Landgræðslu ríkisins og því sé Land-
græðslunni algjörlega óheimilt að afhenda
það öðrum til eignar." Ekkert bendi til annars
en að þetta hafi verið „fullkomlega löglegur
gjörningur og landið afhent til fullrar eignar
og umráða í samræmi við lög sem giltu þá um
sandgræðslu.“
jjóst í þeirra huga að þessu landi yrði skilað í tím-
ans rás, að þetta væri tekið af Landgræðslunnar
háifu til uppgræðslu, en ekki að Landgræðslan
ætlaði sér að sölsa undir sig landið eða telja það til
eigna.“ I vetui- leitaði Viðar til Landgræðslunnar
vegna lands jarðanna Kaldbaks og Þingskála, sem
er innan landgræðslugirðingar, og fór þess á leit að
hún skilaði landinu, en þeirri umleitan var sypjað. í
framhaldinu sendi Viðar málið til landbúnaðar-
ráðuneytisins sem í marslok staðfesti úrskurð
landgræðslustjóra.
Spurður um næstu skref í málinu segist Viðar, í
samráði við lögfræðing sinn, ætla að senda málið til
umboðsmanns Alþingis. „Við erum ákveðin í því að
náum við ekki fram okkar rétti með þeim hætti þá
munum við leita hans eftir öllum þeim leiðum sem
við mögulega höfum vegna þess að okkur þykir
þetta vera valdníðsla af hálfu rfldsstofnunar, að
ætla sér að taka yfir eignarlönd með þessum
hætti.“ Viðar telur að á Rangárvöllum og í gömlu
Landsveit sé um að ræða hluta úr a.m.k. 5-6 jörð-
um, sem Landgræðslan hafi leyst til sín.
Utanríkisráðherra Taívans á Islandi
a Kínverjar mót-
mæla og aðvara
Eftir Jón Pétur Jónsson og
Önnu Pálu Sverrisdóttur
UTANRÍKISRÁÐHERRA Taív-
ans, Tan Sun Chen, kom til landsins í
gær frá Noregi á ferðamannaáritun
ásamt öðrum taívönskum farþegum.
Kínversk stjórnvöld hafa sent ís-
lenskum stjórnvöldum mótmæli
<C** vegna komu utanríkisráðherrans.
Að sögn Gunnars Snorra Gunn-
arssonar, ráðuneytisstjóra utanrík-
isráðuneytisins, kemur Chen hingað
í einkaerindum en hópurinn sótti um
vegabréfsáritun á þeim forsendum
að um ferðamenn væri að ræða.
Hann segir að ferðamenn frá Taívan
hafi ávallt verið velkomnir hingað og
í góðri sátt við kínversk stjórnvöld.
„Kínversk stjómvöld hafa mót-
mælt og varað okkur við, aðallega á
þeim forsendum þetta sé ekki einka-
heimsókn og beri ekki á líta á hana
sem slíka, heldur sé þetta liður í ein-
hvers konar ímyndarherferð fyrir
Taívan," segir hann. Gunnar Snorri
bætir því við að ekki sé um stefnu-
breytingu að ræða hjá utanríkis-
ráðuneytinu. „I okkar huga er aðeins
eitt Kína og þar er höfuðborgin Beij-
ing. Aftur á móti höfum við viljað
rækta sambandið við þá einstaklinga
sem búa í Taipei og nágrenni og vilj-
um ekki meina þeim aðgang þegar
þeir era hér í einkaerindum. Við
leggjum á það ríka áherslu að þetta
Ljósmynd/Atli Már Gylfason
Gestirnir frá Taívan gáfu ekki kost
á viðtölum við komuna til landsins.
er ekki opinber heimsókn. Hér er
bara einstaklingur á ferð og farið
verður með hann sem slíkan.“
I gærkvöldi voru tveir íslenskir
þingmenn, fulltrúar viðskiptalífs o.fl.
í kvöldverði í Perlunni með gestun-
um frá Taívan en Morgunblaðið fékk
ekki staðfest hvort utanríkisráð-
heri'a Taívans hefði verið í þeim
hópi. Bjami Benediktsson, alþingis-
maður og formaður allsherjamefnd-
ar, staðfesti í samtali í gærkvöldi að
hann væri á leið til kvöldverðar í
Perlunni, sem Heimir Hannesson,
konsúll Taívans, hefði skipulagt fyrir
gestina frá^Taívan. Hermann Ott-
ósson hjá Útflutningsráði sagði að
Heimir hefði beðið sig að taka á móti
þessum aðilum, sem væru hér í við-
skiptaerindum. Fundur yrði klukkan
átta 1 dag og með hefðbundnu sniði.
Talsmaður kínverska sendiráðsins
vildi ekki tjá sig um málið í gær.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Stakk sér í mannhafið
FÍN stemning var í Egilshöll í gær þar sem goðin fimm í Duran
Duran héldu tónleika sína. „Stemningin var ólýsanleg. Eg held
að mér sé óhætt að fullyrða að sjaldan hafi áhorfendahópur
sem telur rúmlega 10 þúsund manns verið eins vel með á nót-
unuin og sungið eins mikið með,“ sagði Skarphéðinn Guð-
mundsson, blaðamaður Morgunblaðsins, sem var á staðnum.
Segir hann þá félaga í Duran Duran hafa leikið nánast öll sín
þekktustu lög á 2 klst. prógrammi. „Og uppfylltu þar af leið-
andi þær væntingar sem gerðar voru til þeirra. Þeir voru í
gríðarlega góðu formi og ekki að sjá að þeir væru nýkomnir
saman aftur eftir langt hlé. Simon LeBon lét sig ekki muna um
að stinga sér í mannhafið," sagði Skarphéðinn og tók fram að
undir lok tónleikanna hefði Simon LeBon síðan tilkynnt að
hljómsveitin myndi koma aftur til landsins.
Morgunblaðið/ÞÖK
Morgunblaðið/RAX
Sævar Falk Hermundarson sýnir vinnu-
félögum sínum dýrið sem hann fann.
Risaskeri í
fjörunni í
Hafnarfírði
STARFSMENN unglingavinnunnar í
Hafnarfjarðarbæ rákust á undarlegt fyr-
irbæri við vinnu sína í gær við bátaskýlin í
fjöru miðbæjarins. Það var Sævar Falk
Hermundarson sem fann um 30 senti-
metra langt dýr liggjandi á milli steina.
Hann sagði að það hefði ekki hreyft sig
mikið en dýrið er loðið og líkist helst risa-
stórri margfætlu.
Guðmundur Víðir Helgason sjávarlíf-
fræðingur telur dýrið vera svokallaðan
risaskera, en hann er frekar sjaldséður. I
svari Jóns Más Halldórssonar við spurn-
ingu á Vísindavef Háskóla Islands kemur
fram að risaskeri telst til burstaorma og
getur hann orðið fáeinir tugir sentimetra
að Iengd. Burstaormar eru algengir sjáv-
arhryggleysingjar og hafa meira en 6000
tegundir fundist. Þeir tilheyra fylkingu
liðorma, en það sem greinir þá frá öðrum
ormlaga dýrum er að líkami þeirra er lið-
skiptur. Einkennandi fyrir líkamsbygg-
ingu burstaorma fyrir utan liðskiptan lík-
amann eru totur og áberandi burstar sem
ormarnir draga nafn sitt af. Segir Jón loks
að burstaormar séu gríðarlega fjölskrúð-
ugur hópur dýra og verðugir athygli
þeirra sem áhuga hafa á að kynna sér líf-
ríkið í fjörum hérlendis.
Risaskerinn sem krakkarnir fúndu var stór.
Skeljungur
og Olís undir-
búa stefnur
BÆÐI Skeljungur og OIís eru að undirbúa
stefnu á hendur ríkinu og samkeppnisyf-
irvöldum, líkt og Olíufélagið Esso, sem telur
sig ekki hafa haft ávinning af meintu verð-
samráði.
Samkvæmt upplýsingum frá lögmönnum
félaganna er verið að undirbúa þessa máls-
höfðun og hefur þingfesting málanna ekki
verið dagsett. Hafa félögin frest til að höfða
mál vegna úrskurðar áfrýjunarnefndar til
lokajúlímánaðar.
Stefna Kers, fyrir hönd Esso, var þing-
fest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorg-
un.