Úrval - 01.03.1976, Blaðsíða 32
30
URVAL
Fjöldi skottulækna hefur fest rætur t tiltölulega
nýrri grein rannsóknarlækninga, þeirn, sem
lýtur að kynlífslækningum. Svo virðist, sem
ekkert eftirlit sé haft meðþví, að eingöngu hæft
fólk kalli sig eðlunarfræðinga.
SVIKARAR Á SVIÐI
KYNLÍFSLÆKMNGA
— Donald Robinson —
jöldi fólks, sem hefur átt
við kynferðileg vandamál
að stríða, getur nú vænst
þess að fá bætt úr erfið-
leikum sínum með hjálp
nýrrar greinar læknavísindanna,
hinna svonefndu kynlífslækninga. En
sá er hængur á, að nú lítur út fyrir að
fúskarar, skottulæknar og jafnvel
hreinir og beinir glæpamenn séu að
eyðileggja þessa lækningagrein, að
minnsta kosti í Bandaríkjunum.
Nefna mætti mörg ófögur dæmi um
það, sem er að gerast i þessum efnum
þar í landi. Kona ein í Texas skýrir frá
því, að kynlífslæknir hennar hafi tælt
hana til samfara. í San Francisco
gerðist það, að kynlífslæknir, sem var
kona, sýndi sjúklingum sínum kvik-
mynd, sem fjallaði um hvilíkur
gleðigjafi það væri að hafa mök við
bæði kynin. Að lokinni sýningunni
sagði kynlífslæknirinn áhorfendum,
að foreldrar ungrar stúlkna ættu að
hvetja þær til að prófa bæði eðlilegt
kynlíf og kynvillu, og gera það nógu
snemma, svo að þær gætu valið á
milli. Læknirinn gaf foreldrum ungra
pilta sömu ráðleggingu. Kona í New
York greinir frá því, að hún hafi
leitað til kynlífslæknis, sem einnig
var kona. Lækningin virtist vera
fólgin í því, að læknirinn reyndi að
ginna sjúklinginn til kynvilluatlota.