Úrval - 01.03.1976, Side 40
38
URVAL
dvergar, sem ég þekki, fljúga sínum
eigin flugvélum, sem hafa verið
sérstaklega útbúnar fyrir þá. Heima
fyrir notum við nýtísku, lág húsgögn,
sem við þurfum ekki stiga til að
komast upp í.”
Um það bil eitt af hverjum 2000
börnum, sem fæðast, er dvergur.
Talið er, að í Bandaríkjunum einum
séu um 100 þúsund dvergar. Svo
virðist, að dvergvöxtur sé sá ágalli,
sem foreldrar eiga erfiðast með að
kyngja, þegar börn þeirra eiga í hlut,
og þeir hafa tilhneygingu til að taka
því mjög illa. ,,Þegar dvergur fæðist,
er algengast að aðstendendurnir verði
fyrir taugaáfalli, einna líkast því, að
verið sé að syrgja barn, sem ekki hafí
fæðst,” segir Joan Weiss, félagsráð-
gjafí hjá Moore Clinic, sem er fremsta
stofnun á sviði dvergrannsókna
Bandaríkjanna og hluti af Johns
Hopkins læknamiðstöðinni. ,,Af-
staða foreldranna hefur mikil áhrif á
sálarlíf barnsins. Ef foreldrarnir við-
urkenna líkamlega ágalla afkvæmis
síns og reyna að gera það besta úr því
sem komið er, reynir barnið það líka.
En ef vonbrigðin grúfa sífellt yfir
þeim og sú tilfinning, að þeim hafi
mistekist, verður barnið ekki tilfinn-
ingalega ömggur einstaklingur, og
kemur til með að álíta sér ábótavant á
fleiri sviðum en aðeins að hæðinni
til.”
Til þess að sporna móti slíkum
vanda, hafa dvergarí Bandaríkjunum
stofnað með sér samtök, sem þau
kalla ,,Litla fólkið í Ameríku —
LFA”. Þessi samtök hafa aðsetur í
Owatonna í Minniesota. Hugmynd-
ina að stofnun þessara samtaka átti
ieikarinn Billy Barty, sem árið 1957
stofnaði samtök, sem áttu að vera
málsvari litla fólksins út á við. Nú em
ríflega 2300 félagar í LFA. Allir þeir,
sem em einn og hálfur meter eða
minna á hæð eiga rétt til þáttöku.
Vígorð LFA em. „Vertu stórhuga.”
Þau þýða, að aðalvandamál dverg-
anna felist í því, hvern hug þjóð-
félagið ber tii þeirra.
,,Einu sinni hélt heimurinn, að
litla fólkið væri ekki til nokkurs nýtt
annars en að hafa það til sýnis og
hlæja að því,” segir Gerald Rasa,
almannatengslamaður í Pensylvaníu,
sem líka er forseti LFA. ,,Það var
kallað „bölvun himinsins.” Við
emm að reyna að sannfæra umheim-
inn um, að við séum nytsamar
mannvemr. ’ ’
, .Dvergar eiga við ýmiskonar bygg-
ingarfræðileg vandamál að stríða,”
segir Bedow, sem sjálfur er fyrrver-
andi forseti LFA. Undir fomstu LFA
hafa dvergar tekið höndum saman
við önnur samtök fatlaðra til að knýja
á yfirvöld að setja reglugerðir um
ýmis konar atriði, sem gera þeim
erfitt fyrir. Á baráttuiistanum em
atriði eins og að hengja almennings-
síma lægra, hafa gangstéttarbrúnir
hallandi og annað þessu líkt.
En þrátt fyrir allt em dvergarnir
stoltir og njóta þess að benda á ýmsar
persónur sögunnar, sem einnig voru
dvergar. Atli húnakonungur var einn