Goðasteinn - 01.09.1966, Page 7

Goðasteinn - 01.09.1966, Page 7
guðsfeginn. Að máltíð lokinni var gengið frá nesti og lagzt til svefns. Árla morguns var risið úr rekkjum og tekið til nestispokanna eftir nokkrar geispur. Þegar ég ætlaði að taka minn poka, brá svo við, að hann var horfinn. Við þetta varð ég hálfhvumsa. Nú hefði þó súri hvalurinn komið sér vel eftir kjötátið frá kvöldinu áður, þorstinn hafði ásótt mig, þegar áleið nóttina. Nokkuð frá tjaldinu fannst malpokinn, allur í druslum, hvalur- inn og osturinn voru brottu, aðeins smjöröskjurnar og nokkrir kökubitar eftir. Ég hafði þá gleymt að binda fyrir pokann um kvöldið, áður en ég trauð honum útundir tjaldskörina. Um nóttina höfðu komið hundar að tjaldinu, fundið sýrulyktina af hvalnum, dregið pokann út og gert sér gott af matnum. Mér sveið matarmissirinn og þótti skömm að slóðaskapnum, svona mátti ekki henda ferðamenn. Samferðamennirnir vorkenndu mér og buðu mér mat af sínu nesti. Úr því sem komið var, þáði ég það með þökkum. Ég bjóst ekki við að geta bætt mér nestis- skaðann eins og Grettir forðum, þegar hann týndi nestinu. Úr þessu gekk ferðin viðburðalaust til kaupstaðarins. Folöldin urðu mér ekki til neins tjóns, og ekki áttu þau sök á matarhvarfinu. Þegar til kaupstaðarins í Höfn kom, var vöruskipið nýkomið og því nóg af varningi á boðstólum. Ekki varð ég hrifinn af kaup- staðarlífinu, mér fannst svo tilbreytingarlítið að sjá verkamennina, mjöluga upp yfir höfuð, mjakast áfram þunglamalega, tilbúna til að hægja á sér ef færi gafst. Mér fannst þetta minna á ævilangt, hugsjónalaust strit í þarfir þeirra, sem meira hugsa um að ná aurunum í sinn eigin vasa en þeirra, sem sveitast mest við að afla þeirra. Margt sá ég í búðinni, sem mig langaði til að eiga, en þegar ég heyrði um verðið, komst ég fljótt að raun um, að ég gat ekki keypt mikið fyrir krónurnar mínar. Þeir félagar mínir verzluðu æðimikið, enda voru þeir sæmilega stæðir. Einn þeirra tók meðal annars út húsklukku, en það var sá hlutur, sem ég mátti til að fá. Heima var engin klukka eða úr. Það eina, sem hægt var að átta sig á með eyktamörk var sólin á daginn og stjörnur á vetrar- kvöldum. Oft var það, að hvorki sól eða stjörnur sáust. Þá var Goðasteinn 5

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.