Goðasteinn - 01.03.1973, Síða 8
Hallur hafði ferjubát á Lagarfljóti og flutti ferðamenn þar yfir,
sem komu úr kaupstað og annarsstaðar að. Hesta, sem menn
höfðu í förum sínum, ráku menn í fljótið á sund. Hringiðu-
straumur var þar, svo hestana hrakti í ýmsa króka, áður en
þeir náðu iandi. Komið hefir það fyrir, að menn hafa verið svo
vogaðir að sundríða yfir fljótið á ferjustaðnum, en orðið hált
á því, ekki komizt lífs úr því. I minni tíð á fslandi drukknaði
þar Guðmundur Þórarinsson frá Víðivallagerði í Fljótsdal árið
1856.
Nú, ef maður hélt norður með Lagarfljóti, kom hann að foss-
inum þar skammt fyrir norðan. Hafði Kirkjubæjarprestur flutn-
ingsferju. Þegar ferðamaður úr sveitunum fyrir austan Lagarfljót
kom að því og ætlaði vestur yfir, kallaði hann: „Kom, kom!“
þar til hann sá ferjumanninn koma.
Undan fossinum drukknaði skáldið síra Sigfús Árnason prófasts
frá Kirkjubæ, Þorsteinssonar. Hann átti einn son eftir sig, Halldór
að nafni, þá barn að aldri, er faðir hans lézt. Halldór var guð-
fræðiskandidat og kominn að því að vígjast til prests, þá drukkn-
aði hann í Lagarfljóti á sömu stöðvum sem faðir hans. Kona
Halldórs var Þórunn Pálsdóttir sýslumanns á Hallfreðarstöðum,
Guðmundssonar frá Krossavík. Þeirra son síra Stefán á Dverga-
steini og Hofteigi.
Það mun hafa verið árið 1854, að síra Magnús Bergsson flutti
að Kirkjubæ frá Stöð í Stöðvarfirði og var prestur þar til árið
1864, að hann flutti að Eydölum í Breiðdal. Hann var merkur
prestur, gerði góðar prédikanir og hafði á yngri árum sínum
verið söngmaður en var á seinni árum orðinn veikróma.
Ég var stundum við messu í Kirkjubæjarkirkju, og var það
ánægjulcgt að hlusta á ræður prestsins, síra Magnúsar, og söng-
inn, sem synir hans tóku þátt í. Það mátti segja um syni síra
Magnúsar, að það var allt annað gæfa en gjörfuleiki. Fátækt
mun hafa valdið því, að enginn þeirra gekk skólaveginn nema
Eiríkur, sem nú er fyrir skömmu látinn í Cambridge á Englandi.
Bergur Magnússon skrifaði mjög fagra rithönd, æfði sig í að
skrifa prentletur. Hann þjáðist mörg ár af visnunarveiki, sem
leiddi hann til bana.
6
Goðasteinn