Goðasteinn - 01.03.1973, Side 9

Goðasteinn - 01.03.1973, Side 9
Næstu bæir fyrir norðan Kirkjubæ voru Gunnhildargerði, Nef- bjarnarstaðir, Geirastaðir, svo voru Galtastaðir ytri spölkorn vest- ur af Nefbjarnarstöðum, og sögðu munnmæli, að Galti, Geiri og Nefbjörn hefðu verið bræður og Gunnhildur móðir þeirra og þessir bræður hefðu borizt á banaspjótum að móður sinni áhorf- andi. í Gunnhildargerði bjó, þegar ég var á barnsaldri, merkur og vel metinn bóndi, Jón Vigfússon. Hann var talinn einna sterk- astur maður í Hróarstungu, annar en Hallur á Steinsvaði, báðir voru samtíða um tíma. Hallur var miklu yngri en Jón. Sagt var, að Jón hefði stundum tekið tvær rúg-hálftunnur, sína með hvorri hendi, og kastað upp á klyfberaklakka á hesti báðum í senn, þegar hann var í kaupstaðarferðum. Þyngdin var 200 pund. Jón var tvíkvæntur. Synir hans af fyrra hjónabandi voru Magnús í Hallfreðsstaðahjáieigu og Vigfús á Hrjót í Hjaltastaðaþinghá. Dóttir Jóns var Rannveig kona Jóns Jónssonar snikkara á Hóli í Hjaltastaðaþinghá, þeirra son Jón snikkari hinn yngri í Vestur- Selkirk. Synir Jóns Vigfússonar og seinni konu hans Sigmundur, Ásmundur og Þórarinn. Þeir tóku við búsforráðum með móður sinni að föður sínum látnum, lítið komnir yfir fermingaraldur, voru sterkir sem faðir þeirra og mestir glímumenn í Hróarstungu. Ásmundur og Þórarinn önduðust ungir, en Sigmundur bjó í Gunn- hildargerði. Fyrir norðan Geirastaði tók við víðáttumikið flatlendi, sem kallaðist Húsey. Þar stóð einn reisulegur bær, sem tók nafn af eynni. Húsey mun að mörgu leyti hafa verið bezta jörð í Hróars- tungu, landrýmindi voru mikil og gott beitiland, og tók Húseyjar- bóndi oft til hagagöngu ýmsan kvikfénað austan úr Hjaltastaða- þinghá. Guðmundur hét maður og var Filippusson. Hann bjó lengi í Húsey, bjó þar um 1820, hefir þá verið orðinn gamall. Ætt hans kann ég ekki að rekja. Faðir hans, var mér sagt, hefði komið af Vestfjörðum til Austurlands og dvalið þar um tíma og horfið svo til baka aftur. Guðmundur var talinn margvís og þótti hrekkjóttur, og af því að á hans dögum voru margir hjátrúarfullir, var haldið, að hann Goðasteinn 7

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.