Goðasteinn - 01.03.1973, Qupperneq 13
Kona Jóns í Njarðvík var Sigþrúður dóttir Sigurðar Gíslasonar
bónda í Njarðvík, Halldórssonar prests á Desjarmýri, Gíslasonar
og Guðlaugar Þorkelsdóttur frá Gagnstöð, Björnssonar.
SUÐUR MEÐ EYSTRIFJÖLLUM AÐ VESTAN
DYRFJÖLLIN, URÐARDALURINN OG EIRlKSDALURINN
I miðju fjalljökla beltinu milli Borgarfjarðar og Héraðsins
standa tvö hrikaleg jökulfjöll. I ómuna tíð, enginn veit hvað lengi
áður en hinir norrænu víkingar stigu fæti á ísland, hafa þessi
tvö fjöll verið eitt fja.ll. En af einhverjum náttúruumbrotum hefir
hlaupið afar mikil skriða úr fjallinu. Þegar svo er komið, verða
dyr á því, hérumbil ofan að því miðju, og fjöllin verða tvö og
kallast Dyrfjöll, eru svo samtengd að neðan og kallast Ytra-
Dyrfjall og Fremra-Dyrfjall, hefðu átt að kallast syðra og norð-
ara. Neðan úr byggð sýnist syðra fjallið líkast hesti í lögun, hor-
mögrum, söðulbökuðum, háreistum með stór eyru. Jökulbrún
fjallsins sýndist þunn eins og hnífsegg og eins sýndist í dyrunum.
Aftur er norðara fjallið mjög stórkostlegt á að líta, sýnist ekki
ólíkt stórum, spikfeitum hesti. Líkast var sem norðara fjallið væri
að ögra því syðra og draga háð að því, sem vogaði að standa þvi
andspænis án þess að veita því lotningu.
Frá efri sveitunum í Fljótsdalshéraði sýnast Dyrfjöllin vera
fyrir miðju hafi, Héraðsflóanum, og eru þá mjög tilkomumikil
að sjá. Fyrir sunnan syðra Dvrfjallið cru upptök dals, sem kall-
ast Eiríksdalur. Eftir honum liggur vegur milli Borgarfjarðar og
Héraðsins. Á rennur eftir dalnum og kallast Eiríksdalsá, en niðri
á láglendi, hvar hún fellur í Selfljót, kallast hún Jökulsá. Dalur-
inn liggur frá suðaustri til norðvesturs. Dalurinn er grösugur og
heyskapur í honum, þar sem undirlendi er mest. Ofarlega í daln-
um er háls, sem kallast Lambamúli, og skiptist dalurinn þar í
tvennt, og efst í þeim hluta dalsins, sem er norðan við hálsinn,
liggja björgin, sem hrapað hafa úr fjalljöklinum, þegar dyrnar
mynduðust, svo endinn á dalnum fyrir norðan Lambamúlann
kallast Urðardalur. Björgin cru feikna stór, og get ég ekki munað,
að nokkur steinn sé þar færanlegur. Opnur eru milli bjarganna
og hafast melrakkar þar við inni í þeim opnum, vanalega á vorin,
Goðasteinn
11