Goðasteinn - 01.03.1973, Page 15

Goðasteinn - 01.03.1973, Page 15
BJARGLANDSÁIN OG HRAUNDALURINN Sunnanvert við hin eystri fjöll er dalur, sem kallast Hraundalur, liggur frá suðaustri til norðvesturs. Á rennur eftir dalnum, sem kallast Bjarglandsá. Þegar út úr dalnum kemur, beygist áin til norðurs. Austan við hana er háfjall, sem kallast Stangarárfjall. Tvær ár falla niður úr fjallinu í Bjarglandsá og kallast þær hin ytri Stangará og sú innri. Fyrir ofan Stangarárfjall tekur við jökulfjall, sem kallast Beinageitarfjall. Sagt er, að geitur nokkrar hefðu eitt sinn beðið bana á hjalla fyrir neðan jökulinn og hefðu svo bcin þeirra fundizt og var svo hjallinn kallaður Beinahjalli, og dró svo jökulfjallið nafn af geitunum og beinum þeirra. Að vestan við Bjarglandsá er nokkur partur af afréttarlandi Hjalta- staðarþinghár bænda, sem kallast Hálsar, má með réttu kallast hálendi hið efra, til aðgreiningar frá heima búfjár haga hálendi. Þegar kemur norður þar í móts við, sem Stangarárfjall endar, beygist Bjarglandsá til vesturs og svo til norðurs, unz hún fellur í Selfljót. Brú var á ánni undan Sandbrekku, skammt fyrir sunnan, þar sem láglendið byrjaði. Að Hraundalnum liggja brattar hlíðar, fagrar og grösugar niðri í dalnum. Frá mynni hans að norðvestan og langt suðaustur er fagurt sléttlendi, sem kallast Hraundalsnes. Það er grösugt mjög, og notuðu bændur það oft fyrir hagbeit handa yngstu hrossum sínum á sumrum, sem þeir brúkuðu ekki, líka sendu bændur stundum þangað nautbola sína. Það cr hrífandi fegurð í Hraundal. Þegar maður stendur uppi á fjallahlíðarbrúnum í heiðskíru veðri og horfir ofan á sléttlendið í dalnum, sér maður þar kvikfénað á beit og Bjarglandsána renna þar í gegn á fögrum eyrum og smálæki renna úr hlíðunum ofan í hana. Margir mundu hafa viljað búa í Hraundal hefðu önnur eins náttúruafbrigði verið þar á veðrum eins og einn bóndi í Hjalta- staðaþinghá sagði hefði verið á hvítasunnu 1. júní 1860. Þá var glórulaust dimmveður niðri í byggð og snjókynngi mikil. Hann sagði, að maður úr Hjaltastaðaþinghá, sem hann tilnefndi, hefði verið á ferð úr Loðmundarfirði til Héraðs eftir Hraundal og þar hefði verið sólskin og brunahiti, svo hann (ferðamaðurinn) hefði Goðasteinn 13

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.