Goðasteinn - 01.03.1973, Page 24

Goðasteinn - 01.03.1973, Page 24
var smali um tíma á Svínafelli, mun þá hafa verið á tvítugsaldri, fæddur 1805. Hann leyndist á burt úr vistinni norður að Ketils- stöðum í Jökulsárhlíð til móður sinnar og stjúpa. Þá var sauðasmali á Hjaltastað hjá síra Hjörleifi Sæbjörn Magnússon, þá unglingur, fæddur 1807. Hann bjó síðan á Hrafna- björgum eins og áður er getið. Sæbjörn gætti sauða síra Hjörleifs á vetrum langa leið frá bænum, uppundir afréttarhálendi. Hann gætti þess ætíð að vera kominn í hvarf frá bænum með sauðina á morgnana, áður en dagaði og fór ekki að reka heim á kveldin, fyrr en komið var nær dagsetri. Var þá orðinn matlystugur, hafði ekki smakkað neitt síðan um morguninn fyrir dag, og svo var vistin knöpp á Hjaltastað. Prestur tók á móti sauðunum hjá honum á kveldin hjá Feigshúsum, sem kölluð voru, og rak þá vestur á Stekk, sem kaliað var, og hýsti, en sagði Sæbirni að fara inn og vökva sig. Það meinti að fara inn og eta kveldmat sinn, sem var harður fiskur og rúgbrauð, hið vanalega flatbrauð og flot við. En sumir kölluðu að vökva sig, þó það væri ekki þunnmeti, sem þeir neyttu. Síra Hjörleifur léði síra Einar syni sínum Sæbjörn fyrir smala að Svínafelli, og þar var hann verr haldinn til matar en á Hjalta- stað. Einn dag, þegar Sæbjörn gætti sauða upp til fjalls, gat hann náð saman við hjörð sína með miklum eltingaleik ám úr Hjalta- staðafé og geymdi þær um daginn. Um kveldið, þegar hann var búinn að hýsa, tók hann ærnar og ætlaði að reka þær yfir að Hjaltastað, vissi hann mundi fá góðgjörð þar, sem tæki úr honum sultinn. En þá kom síra Einar og tók af honum ærnar og fór með þær sjálfur. Ónærgætni einsog þetta við hjú, sem sauðasmalar þoldu einna lakast, átti sér stað sumsstaðar í sveitum. En menn þorðu ekki að kvarta, því ekki var víða skjóls að leita. Síra Hjörleifi varð það að bana, að hann stakk pennahníf í lófann á sér, fékk af því verk, sem leiddi upp eftir handlegg og setti sig að lyktum fyrir brjóstið og dró til dauða. Þegar búinu var skipt, ákvað prestsekkjan, að vinnumennirnir, sem voru fjórir, skyldu velja sér sinn sauðinn hver úr sauðahópn- um. Það var af þeim þegið með þökkum. Sæbjörn var einn vinnumanna. 22 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.