Goðasteinn - 01.03.1973, Síða 26
Kona síra Stefáns var Guðríður, dóttir Magnúsar í Húsey,
Jónssonar á Sandbrekku, Bergþórssonar. Þeirra börn voru: Jón
og Halldór, Magnús og Stefán, dætur: Margrét, Ólöf og Herborg.
Margrétu átti Björn í Dölum í Fáskrúðsfirði, þeirra son: Stefán
Björnsson í Winnipeg, ritstjóri Lögbergs.
Síra Stefán var hár maður og þrekinn, fríður og höfðinglegur
sýnum; var vel hagorður, sem faðir hans; var söngmaður og
var unaður að heyra hann tóna. Hann og faðir hans voru lausir
við fégirni og ágengni; voru ei eins hneigðir fyrir búskap og
sumir hinir prestarnir á Hjaltastað, en komust þó viðunanlega af.
Síra Stefáni var veittur Garður í Kelduhverfi 1856, og flutti
hann þangað það ár. En þá varð prestur á Hjaltastað síra Jakob
Bcnediktsson, prestur á Eiðum, og voru þá Eiðar og Hjaltastaðir
sameinaðir í eitt prestakall. Síra Jakob var fæddur 1822. Benedikt
faðir hans var Jónasson, prófasts á Höskuldsstöðum, Benedikts-
sonar Jakobssonar Benediktssonar; sá Jakob Benediktsson var
kallaður „hinn danski“ í Árbókum Espólíns; hvort hann var
danskur eða ekki, er mér óljóst. Dóttir hans hét Soffía, kona
Eiríks Steindórssonar á Búðum; þeirra son Jakob á Búðum, faðir
Jón sýslumanns í Vaðlaþingi, föður Jóns sýslumanns Espólíns
hins fróða. Móðir síra Jakobs Benediktssonar var Ingibjörg,
dóttir Bjarnar prests í Bólstaðarhlíð, Jónssonar Hólaráðsmanns,
Árnasonar í Bólstaðarhlíð, Þorsteinssonar, Bjarnarsonar, Bene-
diktssonar, Bjarnarsonar, Jónssonar biskups Arasonar. •
Síra Jakob lærði fyrst til undirbúnings hjá frænda sínum,
Halldóri prófasti í Glaumbæ, seinna á Hofi í Vopnafirði. Hann
var í skóla veturinn 1849, þegar skólapiltar gjörðu upphlaupið
á móti rektor Sveinbirni Egilssyni; lá þá með höfuðverk og tók
ekki þátt í upphlaupinu, og eftir því, sem hann sagði seinna,
hefir hann ekki viljað vera með í því. Hann tók prestsvígslu
1855 og var þá veitt Eiðaprestakall, og þar dvaldi hann eitt ár,
og var til vistar hjá bóndanum Jónatan Péturssyni, sem þá átti
Eiðastól.
Síra Jakob var meðalmaður á hæð, grannvaxinn, en þó þrek-
lega byggður; var sterkur og snar í öllum hreyfingum, og var
talinn með glímnustu skólapiltum á námsárum sínum. Stundum
24
Goðasteinn