Goðasteinn - 01.03.1973, Side 35

Goðasteinn - 01.03.1973, Side 35
Auk Háklettsins eru margir fallegir klettar í Kóreksstaðagerði, og lékum við börnin okkur oft í kringum þá og kölluðum þá ýmsum bæjarnöfnum. Okkur langaði eftir að sjá huldufólkið ef það kynni að búa í klettunum, en það gaf sig aldrei í augsýn. BÚNAÐARHÆTTIR í HJALTASTAÐAÞINGHÁ Vorvinna Túnarcekt Aðferð við túnarækt var hin sama og höfð var í nálægum sveitum. Áburðurinn, sem ekið var á túnin á vetrum, var barinn í smátt á vorin og svo rakaður yfir túnin. Allt það grófasta úr áburðinum var aðskilið frá því fínasta, og settu sumir það í dýpstu lautir og fylltu upp á milli þúfna. Oft vildi nú þrjóta áburð á túnin, því honum var ekki haldið til noktunar einsog mátt hefði, þar sem hann var að fá, svo sem einsog á mjalta- stöðvum á sumrin (ásauðartað) og úr fjárhúsum á vetrum og mylsnu undan fénaði á yfirborði taðsins. Einstaka menn tóku nýja kúamykju og þynntu út með vatni og þvoðu út um bletti á túnum, og reyndist það vel, ef góð var gróðrartíð, þar óx þá upp blátaða. En ef miklir vorkuldar voru, vildi brenna undan áburðinum, enda var hann ekki notaður nema þegar hinn vana- lega áburð skorti. Að túnvinnu unnu konur sem karlar. Lítið var um túnasléttun, þó ofurlítil undantekning, og víst hefðu menn getað unnið meir að þeirri búbót, hefði þeim hugsazt það. Þegar tún fóru að grænka, voru unglingar látnir vaka yfir þeim til að gæta þess, að kvikfénaður gengi ekki um þau og skemmdi gróðurinn. Ekki voru túngarðarnir, en sumsstaðar sást, að til forna höfðu verið túngarðar, sem voru þó orðnir vall- grónir, hafa líklegast verið hlaðnir af Ásbirni vegghamar, sem getur í Fljótsdælu. JJm birðing sauðataðs Áður en túnvinnu var lokið, var sauðfjártað, sem notað var fyrir eldsneyti, stungið út úr fjárhúsum. Maður byrjaði framvið dyr, stakk með járnrekuspaða upp ferstrenda hnausa, og börn og unglingar báru stykkin til dyra. Þar voru þau látin á hand- Goðasteinn 33

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.