Goðasteinn - 01.03.1973, Side 39
brandur var víkingur mikill og lenti hann brátt í málaferlum um
rán og víg. Svo lauk því, að hann var dæmdur útlægur og fór
hann til Noregs sumarið 999. Flokkur kristinna manna var nú
orðinn svo stór að hans fór verulega að gæta. Til nokkurra átaka
kom milli kristinna manna og heiðinna á þingi sumarið 999, er
Hjalti Skeggjason var dæmdur fjörbaugsmaður um goðgá. Er
Þangbrandur kom til Niðaróss og fann Ólaf konung, lét hann
hið versta yfir íslendingum og kallaði þess enga von, að kristni
mætti hjá þeim við gangast. Varð konungur mjög reiður og lét
taka marga íslenzka menn, höfðingjasonu, sem þá voru í Niðar-
ósi, og setja þá í járn, og hét þeim drápi og meiðslum. Kvað
hann, að þeir skyldu gjalda, hversu óvirðulega feður þeirra tóku
hans erindi á íslandi. Þeir Gissur hvíti og Hjalti Skeggjason, sem
voru með konungi, fengu þó stillt reiði hans, en bindast urðu þeir
fyrir því að kristni yrði við tekin á fslandi, og tók konungur gísla.
Þeir Gissur og Hjalti héldu til fslands sumarið 1000 og komu
til þings. En á því þingi verða hin merkilegu tímamót í sögu
íslendinga, að kristin trú var tekin af allri þjóðinni. Þetta var
þó ekki auðvelt og leit um skeið svo út, sem heiðnir menn og
kristnir myndu berjast. Gissur og Hjalti fluttu erindi sín (þ.e.
Ólafs konungs) af Lögbergi vel og skörulega, og segir kristni
saga, að svo mikil ógn hafi fylgt orðum þeirra, að engir óvinir
þeirra þorðu að tala á móti þeim. En til samkomulags dró ekki
og lauk svo, að þeir sögðu sig úr lögum hvorir við aðra kristnir
menn og heiðnir. Kristnir menn báðu að „Síðu-Hallr skyldi
segja lög þeirra upp þau, er kristninni skyldu fylgja, en hann
keypti með hálfu hundraði silfurs að Þorgeiri goða, sem lögsögu
hafði, að hann segði upp lög hvortveggi, kristin og heiðin, og var
hann þá enn eigi skírður", segir Kr.saga. Það er umdeilt atriði,
hvernig ber að skilja þetta, en vafalaust hafa farið fram samn-
ingar, áður en samkomulag náðist um, að einn maður segði upp
þau lög, sem báðir aðilar vildu játa. Og þessi orð Kristnisögu
um Þorgeir: „Ok var hann þá enn eigi skírðr", benda á, að hann
hafi verið hlynntur kristnum mönnum, og þeir því þorað að
sínu leyti að fela honum þann vanda að segja upp lögin. Er
Þorgeir hafði legið sólarhring undir feldi sínum, reis hann upp
Godasteinn
37