Goðasteinn - 01.03.1973, Page 52

Goðasteinn - 01.03.1973, Page 52
Guðrún Jakobsdóttir á Víkingavatni: Æskuminning „Margt er það og margt er það, sem minningarnar vekur, en þær eru það eina, sem enginn frá mér tekur.“ Þannig tók skáld eitt sinn til orða. Ég er ein þeirra, sem ganga til fundar við liðna tíð, þá er hljóðar stundir gefast. Mér kom því til hugar að skrá þessa minningu fyrir börnin mín og þá aðra, er hún kynni að mæta. Þegar þetta gerðist, er ég nú segi frá, átti ég heima í Holti undir Eyjafjöllum, í stóru timburhúsi. Herbergi voru þar mörg, dimm og köld á vetrum. Engin voru þar þá rafljósin og upphitun af kolaofnum aðeins í tveimur her- berjum. Rafmagnsljós hafði ég aldrei séð nema í mikilli fjarlægð til þess að gera, en það voru ljósin á húsum og götum úti í Vestmannaeyjum og skipunum, sem dvöldu allar nætur við strönd- ina, einkanlega ef veðurofsi stóð af jöklinum. Þá var oft sem þar væri yfir stóra borg að líta. Ég lá oft úti í glugganum og mændi á þessi björtu og fallegu ljós, er hófust og hnigu eftir öldulaginu. Mig langaði að nálgast þau, horfa á þau í nálægð en það varð aðeins ósk. Vitinn í Vest- mannaeyjum logaði líka öll kvöld og allar nætur. Hann gaf ljós- merki með jöfnu millibili, grænt, rautt og hvítt. Mér var aldrei gefið um þau Ijós, vitinn fór beinlínis í taugarnar á mér, því að í barnssál minni bjó sá grunur, að einhver hætta væri í nánd við hann, hætta, sem „biði sjómönnum grand“. Nei, ég var aldrei 50 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.