Goðasteinn - 01.03.1973, Blaðsíða 64
lngunn jónsclóttir, Skálafelli
„önnur
er öldin“
Nú cr öðruvísi um að horfa en um síðustu aldamót, nú eru
allar hendur framreiddar að hjálpa þeim, sem hafa misst jarð-
næði sitt og eignir. Árið 1886 kom Einar Sigurðsson frá Lamb-
leiksstöðum á Mýrum jarðnæðislaus með fjölskyldu sína, konu og
fimm börn, öll fyrir innan fermingaraldur, til Páls Benediktssonar
á Smyrlabjörgum í Suðursveit og bað hann ásjár. Páll lét hann
ekki synjandi frá sér fara og leyfði honum að byggja yfir sig í
Sjónabergsbrekku, sem síðan kallast Einarsbrekka. Með aðstoð
nábúa og annarra góðra manna gekk fljótt og vel að koma upp
baðstofu og geymslukofa, og fjölskyldan settist þarna að.
Einar Sigurðsson og Hólmfríður Bjarnadóttir voru þarna í 3
ár. Á cðru ári þeirra á Smyrlabjörgum fæddist þeim stúlka, skírð
Kristjana. Árið 1890 býður séra Sveinn Eiríksson á Kálfafellsstað
Einari Einbúa, sunnan megin við Staðará, til ábúðar. Þar var
Einar í 4 ár, og þar fæddist þeim hjónum tveir synir, Sveinn og
Lúðvík, sem báru nöfn séra Sveins og Lúcíu ljósmóður. Þá skeð-
62
Goðasteinn