Goðasteinn - 01.03.1973, Blaðsíða 66

Goðasteinn - 01.03.1973, Blaðsíða 66
Ég man vel eftir Einari, hann var laglegur maður, prúðmenni í framkomu og hagleiksmaður. Fallegir voru hestarnir, sem hann tálgaði, útskornir með hnakk og beizli, og sama var um fugla og fleira, sem hann var að gefa okkur systkinunum. Hólmfríður var mesta þrifakona, börnin voru öll vel gefin og þroskaleg. Þau hjón skildu börnin aldrei við sig cn fóstruðu þau sjálf. Einar gafst ekki upp, þótt syrti í álinn og svart væri framundan. Hann sigraðist á öllum sínum erfiðleikum. Einar mátti kallast gæfumaður, og má þar um segja eins og séra Jón Steingrímsson sagði: „Svona leikur Guð við sín börn.“ Mig minnir það vera 1900, að það komu hjón úr Suður-Múla- sýslu, sem voru að flytjast sveitaflutningi til Kleifahrepps í Vestur- Skaftafellssýslu. Þau voru með 4 drengi, sá yngsti á fyrsta ári. Hreppsnefndin á Mýrum sá um flutning þeirra í Suðursveit. Komið var við hjá Páli Benediktssyni á Smyrlabjörgum að hvíla sig, og nú treysti konan sér ekki lengra, var eitthvað lasin, og Páll tók að sér flutninginn. Þessi hjón hétu Páll Hansson og Pálína Pálsdóttir. Daginn cftir var Pálína slöpp. Þá talaðist það til milli Páls Hanssonar og Páis á Smyrlabjörgum, að Pálína verði þar um sumarið en Páll maður hennar færi í kaupavinnu austur á Firði, en héldi svo að hausti áfram ferð sinni Nú leið tíminn. Páll Hansson kemur snöggur og snauður og sezt að hjá Páli Benedikts- syni og auðvitað konan með yngsta son þeirra. Hin börnin voru áður komin annað, Sveinn og Gunnlaugur til frændfólks suður í Öræfum og Páll að Flatey til móðursystur Páls Hanssonar. Pálína var frá Hofsnesi í Öræfum, en Páll Þlansson var launsonur Árna Gíslasonar sýslumanns. Hólmfríður móðir Páls var dóttir Páls í Arnardrangi. Nú kemur vorið. Þá haida þau Páll og Pálína áfram ferð sinni og Páll Benediktsson stendur fyrir flutningnum að Reynivöllum. Ég fór með þeim og reiddi Jóhann litla, kominn á annað ár. Pálína bar annað barn undir belti sínu og var slöpp. Við komum að efri bæ á Revnivöllum. Systurnar þar, Aradætur, voru í vin- semd með Pálínu frá fyrri tíma. Ég ætlaði að gista á neðri bæn- um, en þá sagði Elín kona Þorsteins Arasonar: ,,Þú ert eins skyld 64 Goðasteinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Goðasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.