Goðasteinn - 01.03.1973, Side 73
Frá fréttum er fátt at segja ok þat illt; Ölafr ferðamaðr minn
hefir nýlega mist börn sín tvau, ok er þat sorgfullt tilfelli.
Bið ek yðr að kveðja konu yðra ok hallda góða minning mín.
Með mestri vinsemd ok virðingu. Yðar
Dr. Konráð Maurer.
Meðtekið 10. okt. s.á.
Sighv. Árnason.
II
Munchen, 11. Marts 1866.
Háttvirti vinur. Það var mér stór ánægja að fá yðar góða bréf,
28. Ágúst næstl. árs, og ég skal víst reyna að svara því, þótt það
sé hætturáð, óvanur sem ég er að skrifa íslenzkuna.
Ég verð þá að byrja með því að þakka yður hjartanlega alla
þá góðvild og gestrisni, er þér veittuð mér fyrir rúmum 7 árum,
cnn þó ekki síður hitt, að þér haldið mig enn í góðri minningu
tii þessa dags. Ég segi yður satt, að tíminn líður mér aldrei úr
minni, er mér heppnaðist að ferðast um Island og að sjá með
sjálfs míns augum landið og fólkið, sem ég hafði lesið og heyrt
svo margt um. Oft hugsa ég um, hvort það sé ekki gerandi að
koma aptur þángað, en ég er þó, því miður, hræddur um, að það
verði aldrei. Ég er nú að vísu ekki meir en yðar jafnaldri, eptir
því sem þér segið mér, en ekki nær eins heilsugóður sem þér.
Kannske það sé ekki eins hollt að sitja og starfa að bókum sem
að ríða góðan hest og ferðast yfir holt og heiðar, enn þess er nú
enginn kostur, og hvað sem um það er, þá em eg nú ekki svo
fær til lángferða né svo ferðafúss, sem eg var fyrrum.
Hitt er enn, að eg kvongaðist síðan eg kom aptur frá íslandi
og er nú fimm lifanda barna faðir (hið sétta sálaðist í fyrra sum-
ar), svo að eg má nú kallast heldur fastur á fótum hjá því, sem
áður var. En eg segi þó eins og þér, að í giptingu minni er fólgið
allt hið bezta, sem mér auðnaðist að eiga í þessu lífi, og ég óska
okkur báðum, að okkur sé unnt að búa sem lengst með konum
okkar og börnum.
Um stjórnmál íslands fæ ég ávallt að heyra nokkuð eptir Jón
Sigurðsson, hann gerir svo vel að skrifa mér um allt hið merki-
Goðasteinn
71