Goðasteinn - 01.06.1974, Page 6

Goðasteinn - 01.06.1974, Page 6
eins og áttleysa, og á för hennar frá austri til vesturs getur hún átt nöfnin hafræna, vestræna og kveldkul. Þessir dagar eru hið fegursta skart íslenskrar náttúru og þess virði, að þeim sé gaumur gefinn af ungum og öldnum. í þeim er þann frið að finna, sem frá engum verður tekinn og allir þrá. Þótt för sé ekki lengri en út í hlaðvarpann, nemur hugurinn þá gleði, sem býr í hverjum hljómi sumarsins, blómi, sem grær og bliki í augum bernskunnar. Og þú finnur, að þú ert aldrei einn. Mild og hlý sumarnótt er liðin, og létt þokubönd, sem beltað hafa norðurfjöllin, eru að leysast upp og hverfa fyrir glaðri morg- unsól. Þá er öllum gott úti að vera. En bændur, sem hafa tekið saman hálfþurrt hey undan náttfalli, hugsa sig um, áður en þeir dreifa úr drílinu, og kalla þetta morgunskin dagmálaglcnnu. Oft reynist það svo, að upp úr dagmálum fer að draga saman í skúrir, sem hvolfast yfir, þegar líður að hádegi. En oft kemur skin eftir skúr. Þegar styttir upp eftir rosakafla og gengur til hærri áttar (land- norðurs), er loftið oft reisingarmikið og fagurt. Landnyrðings- bólstrarnir skrúfast upp yfir háfjöllin cins og risaturnar, og birtan ljómar, hvar sem litið er. Elstu menn, sem ég man, kölluðu þetta veðurfar fjallsperring. Oft hélst sama veður nokkurn tíma, logn á láglcndi og bólstrar á fjöllum. Væri það í gróandanum, fóru bændur að hafa orð á því, að seint gengi gróðurinn, þctta væri meiri þræsingurinn. Var þá litið til lofts um leið og aðgætt, hvort ekki örlaði einhvers staðar á blikukló. Þar gat brugðið til beggja vona, en hver vissi nema forsjónin yrði samt innan handar og gæfi skúr um næstu kvartelaskipti. Perluský eru mjög skrautleg morgunský. Er ekki of sagt, að þau ljómi í öllum regnbogans litum og lögunin lík og horft sé á óteljandi perluþyrpingar. Þau liggja í boga frá sól, hátt upp á himinhvolfið. Maríutása nefnast létt og fíngerð góðviðrisský. Ull, sem búið er að greiða úr til kembingar, er kölluð tása. Oft voru börn látin tæja ullarlagð. Til uppörfunar var þeim sögð sagan af Sankti Maríu, sem situr á himnastóli sínum og tæir hvíta ull upp í sokka á fátæk börn svo þau fari ekki í jólaköttinn. Var ekki laust við 4 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.