Goðasteinn - 01.06.1974, Side 8
„Þoka sest á Þríhyrning, það mun vita á landsynning,“ sögðu
Landeyingar í gamla daga.
Þegar rifinn er vangi og búið að taka roðið af, kemur í ljós
þunn himna, aðeins þykkari í annan endann, og heitir hún kerl-
ingarsvunta. Mun hún eitt elsta tæki til veðurspár hér á landi.
Þegar þú ert búinn að losa svuntuna, bregður þú henni upp í
þig og bleytir hana hæfilega í munnvatni þínu, tekur hana svo
út úr þér og lítur á hana fyrir birtuna. Ef hún stendur bein, er
veðurspáin góð, en lyppist hún út af, veit það á rok og rigningu.
Skúr, sem gengur fljótt yfir, er kölluð skvumpa. Sumir segja
skumpa. í léttum éljagangi er haft á orði, að hann rokki á átt-
inni. Þegar norðanátt með frosti hefur staðið um hríð, fer veðrið
smám saman að ganga niður og hlýna. Útlitið breytist, einkum
fer austurloftið að verða skafið (austanhreinn) og sjávarhljóðið
að færast austur, og brátt tekur austanátt völdin.
Regnboginn er, e.ins og flestir vita, einnig kallaður friðarbogi.
Hann er brú milli himins og jarðar. Þegar þú sérð hann, áttu
að segja: Friður á milli Guðs og manna, friður á milli himins og
jarðar. Ef þú getur komist undir endann á regnboganum, máttu
kjósa þér eina ósk. Hún rætist þó ekki, ef hún er öðrum til meins.
Algengt var að tala um klæddra manna veður í Landeyjum. Við
hugdeigan mann var sagt: „Það er nú ldæddra manna veður.“
Var þá ætlast til að hann drifi sig af stað. Hitt gat líka vcrið,
að heimilisfólk vildi halda í þann, sem var að búa sig af stað,
og segði: „Þú fcrð ckkert í þessu veðri.“ Hann var þá vís til að
segja: „Það er klæddra manna veður,“ og rauk af stað. Þá hafði
maðurinn líka klætt af sér kuldann.
Séu húsdýr, hundur eða köttur, með hlaup og ærsl, er sagt, að
það lciki undir þeim vindur. Og reynist það rétt, að þá hvessir.
Ef köttur situr malandi og þvær sér aftur fyrir eyra, veit það
á góðviðri.
Svcimi kjói yfir engi og væli, veit það á rosa, cnda oft nefndur
vætukjói.
„Þegar spóinn vellir graut, þá er úti vorhörkur og vetrarþraut.“
Ymsir hafa talið að lómurinn væri spáfugl. Mér hefur alltaf
virst hann lifa fyrir líðandi stund, en rödd hans er mikil og breyti-
6
Gudasteinn