Goðasteinn - 01.06.1974, Page 15
Rifinn vangi
Vangi cr hálfur þorskhaus. Þegar rifinn cr vangi, er byrjað á því
að skera af kjaftabeinið og losa kjaftólina frá skoltinum. Þá er
krumminn skorinn af og tekin úr honum kvörnin. Kverksiginn
£r þá tekinn líka. Þar næst er roðið rifið af. Flestir láta augað
fylgja. Koddinn er losaður næst, en hann liggur að kinnfiskinum.
Svo er bógurinn tekinn. Hann liggur í bugðu við augað. Nú cr
kerlingarsvuntan rifin upp, þunn roðhimna, aðeins þykkari í
annan enda. Gert var hlé, þegar kom að henni, því spá þurfti
í hana fvrir veðrinu, og hefur því áður verið lýst.
Nú er losað um kinnfiskinn. Undir honum er lostætur biti, sem
heitir bjalla. Öðru megin á kinnfiskinum er þunn brún, lygabarðið,
og engum holl, enda sniðin burt og fleygt. Næst er vanganum snúið
við og gómroðið rifið af. 1 því er svartur blettur, nefndur skolla-
blettur, talinn óætur. Dálítill fiskbiti er undir roðinu. Heitir hann
gómfiskur. Kýrfiskur er svo fremst við góminn.
Fiskkvarnir voru notaðar sem leikföng af börnum, sem m.a.
röðuðu þcim í langar raðir á gólfi sem aðhaldi, er þau ráku fé
sitt í rétt. Margt var sér til gamans gert í gamla daga að því,
er sagnir herma, meðal annars að rífa hertan lönguhaus, hníflaus
og fatalaus og ekki talið á færi annarra en hraustra manna.
Tálknvængjum var haldið t.il haga vegna kerlingarprjónanna,
sem hafðir voru til þcss að spýta með fyrir grjúpánslanga og
stundum fyrir hnokka á rokkinn. Til þeirra var einnig gripið til
að sópa með kvarnarstokkinn ef ckki var handbær sporður af
hcrtum fiski.
Sandvirki
Til voru svonefnd sandvirki. Þau voru lík klyfbera en bogarnir
tveir, festir við hliðarfjalirnar að framan og aftan. Þá voru
tveir járnkrókar á hvrri hlið. Á þá voru fiskkippur hengdar, er
stóð í flutningi fisks frá sjó. Undir virkjunum var þófi stoppaður
með búkhári eða ullarhnaki. Ein virki sá ég með þófa úr mel-
rótum og nefndist hann melja. Hann var stangaður með þræði
svo melurinn færðist ekki til. Utan yfir melnum var pokastrigi.
Hann var orðinn gatslitinn, og stóðu tjásur út í gatið.
Goðasteinn
13