Goðasteinn - 01.06.1974, Side 26
stóran fisk úr bagga sínum, hljóp með hann heim að bænum og
gaf hann húsfrevju til endurgjalds fyrir svaladrykkinn. „Hann var
ekki valinn af verri endanum fiskurinn sá,“ sögðu félagar Jó-
hanns, sem sögðu síðar frá þessu.
Eldgamla Áltarhóls-Ella
Þessi saga er frá árunum, þegar timburelda var svo mikil hér á
landi, að naumlega fékk fátækur maður nokkra spýtu nema cf svo
bar til að smíða þurfti utan um mann. Áttu bændur oft í miklum
erfiðleikum af þessum sökum, svo við lá stundum að þeir gætu
ckki nýjað upp amboð sín, hvað þá annað.
Farnar voru lestaferðir út á Eyrarbakka til aðdrátta fyrir slátt-
inn, og vanalega var timbrið þar efst á blaði. Ef þessar ferðir
gengu að óskum, voru þær góð tilbreyting frá hversdagsönn. Allt-
af skeði eitthvað nýtt á hverjum degi ferðalagsins, sem gaman
var að minnast og segja frá, þegar heim kom. Frá sumu var sagt
í gamansömum tón, sérstaklega ef einhverjum Iéttlyndum manni
hafði tekist að leika smávegis á kaupmann, í mesta mcinleysi þó.
Hér er sýnishorn af þeim orðaskiptum:
Bóndi úr Landeyjum fór lestaferð út á Eyrarbakka. Segir ekki
frá ferð hans, fyrr en kom í kaupstaðinn. Þar gengur hann fyrir
kaupmann, heilsar honum og segir svo: „Ella cr dauð, og nú þarf
ég að fá mér nokkur borð og brennivín á kútinn.“ „Er Ella dauð?“
ansar kaupmaður fálega, kallar svo á búðarmanninn og segir hon-
um að láta bónda fá nokkur borð og tár á kútinn. Að svo búnu
býr bóndi sig sem fljótast til ferðar. Stendur það í járnum, að um
leið og hann stígur í ístaðið og vippar sér á bak, ber þar að kunn-
ingja hans, sem staddur var í búðinni, þegar bóndi kom. Yrðir
hann á bónda vorkunnlátur og segir: „Það eru bágar ástæður hjá
þér, bráðum kominn sláttur og Ella þín dauð.“ Glottir þá bóndi
og segir: „Það er ekki hún Ella mín, heldur allt önnur Ella, það
cr hún eldgamla Álftarhóls-Ella, gamla, gamla.“ Hottar hann svo
á drógarnar, sem kippa sem snöggvast í taumana og rölta svo
ldyfjaganginn eftir aldagömlum götutroðningum þjóðleiðarinnar.
Ósjálfrátt greikka þær sporið, því nú liggur leiðin heim. Og bóndi
ber fótastokkinn.
24
Godasteimi