Goðasteinn - 01.06.1976, Qupperneq 6
Reynivöllum. Ingunn dóttir þeirra, amma mín, óist upp hjá Þor-
steini afa sínum og Ingunni ömmu sinni á Felli.
Börn Björns Brynjólfssonar og Bergljótar voru mörg. Jón sonur
þeirra bjó í Borgarhöfn góðu búi. Frá honum er komið vel gefið
fólk. Vilborg dóttir Björns varð seinni kona séra Eiríks Rafn-
kelssonar á Hofi í Álftafirði og er sögð þar til þessi saga: Séra
Eiríkur var launsonur séra Rafnkels Eiríkssonar á Stafafelli í Lóni
og hét móðirin Hildur Salómonsdóttir. Hann vígðist 1766 aðstoð-
arprestur til séra Þorleifs Björnssonar á Hofi og fékk fyrir konu
Þórdísi dóttur hans. Hann missti hana og var hjónaband þeirra
barnlaust. Um þær mundir segir sagan að Skálholtsbiskup hafi
verið á ferð um Austurland í visitasíu sinni. Sagði séra Eiríkur
honum í sorg sinni að hann vildi segja af sér og gerast bóndi.
Biskup bannaði honum það, þar sem hann væri vel látinn af sókn-
arbörnunum, skyldi hann heldur gifta sig aftur og gæti hann vísað
honum á gott kvonfang. Kvaðst hann hafa gist hjá Birni bónda
á Reynivöllum í Suðursveit. Hefði sér litist vel á Vilborgu dóttur
hans. Skyldi hann nú fara þangað og biðja hennar. Séra Eiríkur
styggðist við og aftekur þetta með öllu. Kveður biskup svo séra
Eirík með þeim orðum að hann harðbanni honum að segja af sér.
Að litlum tíma liðnum kemur austur að Hofi sendimaður frá
Birni á Reynivöllum með þau tilmæli til séra Eiríks að hann treysti
honum til að koma til sín, dóttir sín hafi slasast á ljá, en þar sé
enginn, sem treysti sér til að gera að sárum hennar. Séra Eiríkur
bregst fljótt við. Hann var vinsæll af lækningum sínum og þó
einkum skurðlækningum. Vinnumaður Björns og séra Eiríkur flýta
för sinni nótt sem dag. Prestur gerir að sárum Vilborgar og ætlar
svo til baka fljótt aftur. Björn bóndi fer þess þá á leit, hvort hann
geti ekki verið lengur, því það sé enginn, sem treysti sér til að
hirða sár dóttur sinnar. Prestur segist ekki mega tefja lengur
embættis síns vegna og leggur það þá til að stúlkan sé flutt
á kviktrjám til sín. Björn féllst á það og lætur tvo menn fara með
austur, séra Eiríki til aðstoðar.
Séra Eiríkur græddi sár Vilborgar. Hún ílentist þar og varð
kona prests. Þau eignuðust þrjú börn, tvo syni og eina dóttur.
Sonur þeirra var Brynjólfur hreppstjóri á Hlíð í Lóni. Hann var
4
Goðasteinn