Goðasteinn - 01.06.1976, Side 8
hljóp með mér!“ Léttlyndið og viljaþrekið var mikið hjá Ara og
systkinum hans.
Ég fæddist fellisárið 1882, 10. mars, og var fárra vikna, þegar
ég fékk mislingana, sem þá gengu. Þá dó Gísli móðurbróðir minn
austur í Bre.iðdal, þar sem hann var vinnumaður. Ingunn amma
mín fékk föður minn til að fara þangað austur, en húsbóndi Gísla
hafði skrifað henni og sagt að hún yrði að ráðstafa eigum hans.
Faðir minn fór gangandi austur og hreppti byl, sem skall á hann
milli Berufjarðar og Breiðdals. Vissi hann ekkert, hvar hann fór
en rakst að lokum á fjárhús og lá þar um nótt.ina. Klæddi hann
sig þá úr sokkunum, vatt þá og klæddi sig síðan í þá aftur en
lét moð innan í þá til hlýinda. Húsbóndinn kom þar um morgun-
inn, leiddi hann í hús sitt og gerði honum allt til góðs.
Köld var aðkoman hjá föður mínum, þegar heim kom, mest af
sauðfénu hafði farist í bylnum, margt hrakist í Nýpakíl og varð
að engum notum, en af öðru voru teknir ganglimir og reyktir.
Móðir mín sagði að tár hefðu runnið af augum afa, meðan faðir
minn sagði ferðasöguna. Þeir faðir minn og afi voru með fjárríkari
bændum í sveitinni.
Lítið var um kjötát fyrstu árin eftir fellinn. Þá var farið til
grasa og sölva og aukið við gulrófnarækt. Ég kom þá eitt sinn tii
Guðnýjar móðursystur minnar í Odda. Gaf hún fólkinu þá í
miðdag gulrófur og sölvaslæður, bunka af þeim, flatbrauð og
bræðing og smjör við. Góðir kálgarðar voru í Odda.
Engin voru þægindin á þessum árum, öll föt heimaunnin, engin
prjónavél, engin saumavél, öll ullarföt saumuð með fínum tog-
þræði, sem spunninn var á handsnældu. Á löngum kvöldvökum
sátu allir við verk sitt eftir kvöldmat til kl. 11, konur að tæta
uliina, karlmenn að spinna hrosshár og flétta reipi, beislistauma
og hnappheldur og bregða gjarðir og þannig mætti áfram telja.
Á heimili foreldra minna voru jafnaðarlega ofnar 3 langar vefja-
voðir, ein í utanyfirföt, önnur í fínni og sú þriðja í nærföt og
ábreiður á rúm, ofið köflótt í svörtum og rauðum lit.
Saumavél eignaðist ég 1903, þá í foreldrahúsum á Smyrlabjörg-
um, en trúlofuð Gísla Bjarnasyni á Uppsölum. Ég segi honum að
mér hafi boðist saumavél á 25 krónur og sé hún ekki ný. Hann
6
Goðasteinn