Goðasteinn - 01.06.1976, Qupperneq 9

Goðasteinn - 01.06.1976, Qupperneq 9
segir: „Blessuð, fáðu hana, ég skal gefa þér fyrir hana“, og fékk mér verðið. Þannig var þessi saumavél til komin að Katrín Þor- steinsdóttir, amma Lúðvíks Jósefssonar ráðherra, var komin ráðs- kona að Flatey til Ara Arasonar frá Reynivöllum, hann var þar einsetumaður og búinn að koma sér upp húsi. Katrín og Ari voru bræðrabörn. Maður Katrínar hét Gestur og var í kaupavinnu á Austfjörðum, kannski sjómaður. Ari gekk með flogaveiki, sem kvaldi hann á stórum og strjálum. Katrín þoldi ekki að horfa á þetta og fór til Sigurðar Benediktssonar í Flátey. Hann og Katrín voru systkinabörn. Þar var Katrín vinnukona í eitt ár. Gestur maður Katrínar kom um haustið úr kaupavinnunni snauður og slyppur, . kannski enginn eða lítill fiskur komið á öngulinn hans, sem oft vildi verða. Bauð Sigurður Bcnediktsson honum að vera hjá sér, þar sem Katrín var ráðin þar til vors. Þáði Gestur það, því eigi var margra kosta völ. Ekki hafði hann ráð á fjármunum til að borga með vetrarvistina. Seldi Katrín því saumavélina og eitthvað fleira, sem þau hjón gátu losað sig við. Saumavélina átti ég í 40 ár og saumaði með henni allt á mitt heimafólk. Katrín var myndarkona, Gestur prúður í allri fram- komu og myndarmaður. Móðir mín og Katrín voru systkinadætur, svo það mega allir vita að ég hlusta á Lúðvík Jósefsson. Á þessum tíma voru saumavélar ekki komnar nema á fá heimili hér í sveit. Eldavél kom á mitt heimili 1905, á fá heimili áður. Einna erfiðastur var vatnsburðurinn á þessum tíma. Það var erfiður og langur vatnsvegur í ána á Uppsölum þau 37 ár, sem ég bjó þar. Mér er í minni liðið kvöld, þegar dagur var stystur. I byrjun kvöldvöku komu til gistingar þrír menn, Henrik Erlends- son lækn.ir og með honum tveir Öræfingar. Það snjóaði mikið þennan dag og var farið að hvessa. Læknirinn var stirður af reiðinni og urðu fylgdarmennirnir að taka hann af baki og bera að dyrum. Nú þurfti að hafa fljótar hendur að kveikja upp eld og verka snjóföt, þvo vettlinga og þurrka o. s. frv. Fylgdarmenn læknisins voru Jón Bjarnason frá Skaftafelli og Eyjólfur Eyjólfsson frá Hofi, báðir skemmtilegir menn. Allt gengur þetta vel og læknir hrókur alls fagnaðar, var búinn að taka handlaug og þvo sér, en fyrir mig Goðasteinn 7
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Goðasteinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.