Goðasteinn - 01.06.1976, Síða 12
í pottbrauð og siátur til mjöldrýginda og í tevatn, einnig soðin
í kaffikatlinum til drýginda við kaffið.
Skyrgerð var almennt mikil hjá fólki og safnað eftir fráfærur
í stór keröld hjá bændum, sem ríkir voru af fénaði til fráfærna.
Á báðum bæjum á Smyrlabjörgum voru tveggja og þriggja tunnu
keröld, girt fjórum trégjörðum. Margir skáru niður kál af gul-
rófum, suðu það í kássu og létu í tunnu saman við skyr og þótti
mikið holt og gott. Amma mín í Odda lét börn sín fara til berja
með margar skjólur og lét berin í súrnarkeraldið, saman við súrn-
ina til vetrarforða og þótti sælgæti. Uggar og roð af hörðum fiski
og sundmagar var súrsað og þótti mjög gott. Hrogn voru reykt
og soðin. Soðnar hrognakökur smakkaði ég. Hrogn voru hnoðuð
upp í mjólk.
Síðasta torfbaðstöfan, sem faðir minn byggði, var stór og rúm-
góð. Þrjú rúm voru fram með hvorri hlið og eitt fyrir stafni í
lítilli kompu, hjónarúmið. Baðstofan var hellulögð. Helluna sótti
hann inn í Miðbotnafjall, sem var næst jökli, sunnan við Skála-
fellshnútu. Helluna flutti hann í torfkrókum, sem hengdir voru á
klakka. Hann átti tvo og nágranni hans átti tvo. Margar ferðir
fór faðir minn eftir hellum. Það var ekki auðfengin góð hella ná-
lægt heimilum.
Allir aðdrættir voru erfiðum bundnir. Maður á valla orð yfir
þann stóra mun á þessari framfaraöld, allt ræktað land, enginn
vætir sig í fót, enginn bindur bagga, enginn tekur upp fang og
enginn lyftir þungum bagga á klakk.
Margir voru búhagir, sem svo var kallað, smíðuðu verkfæri upp
í hendur sínar og öll áhöld, smíðuðu amboð, bökkuðu ljái, smíð-
uðu mjólkurtrog, skjólur, koppa og kyrnur. Faðir minn átti spóna-
löð og smíðaði spæni úr hrútshornum handa okkur börnunum.
Hann smíðaði hnífsblöð og setti skaft á, torfljái og s.igðar, orf og
hrífur, heykláfa, kvíslar og vallarklára. Kvíslin var notuð til að
mylja haustburðinn, vallarklárinn að ýta áburðinum ofan í túnið
og krítmulið. Vanalega vann kvenfólkið að þessu jafnt karl-
mönnunum.
Laupar voru notaðir til að flytja kúamykjuna. Lokið var neðan
á og loka þar á, sem var færð til svo að lokið opnaðist og inni-
10
Goðasteinn