Goðasteinn - 01.06.1976, Síða 21
margþættum þrengingum, að hún hafði lært til hlýtar að lifa með
landinu og aðstæðum þess. Nýtni og nægjusemi voru hornsteinar
þess samfélags, scm Ingunn ólst upp í undir lok 19. aldar, og
sömu sögu var að segja í öllum öðrum landshlutum. Líklega væri
rétt að segja nú, nálægt lokum 20. aldar, að vandamálin liggi ekki
í landinu, sem við byggjum, heldur í fólkinu sjálfu. Goðasteinn
þakkar Ingunni á Skálafelli fyrir framlag hennar til þessa heftis.
Megi svo guð ,,gefa henni raun lofi betri“.
Þ. T.
HELGI Á RAUÐALÆK
Hclgi var lcngi vinnumaður hjá Runólfi hreppstjóra á Syðri-
Rauðalæk og dó þar. Hann var mjög trúr þjónn. Eitt rigningavor
var mjög mikill og almcnnur lambadauði. Helgi var spurður, hvort
svo væri ekki á Rauðalæk. ,,Þau fá ekki að drepast,“ sagði Helgi.
Vakti hann þá nætur og daga að gæta ánna, sem voru að bera.
Einhver spurði Helga, hvort hann hefði alltaf átt heima á
Rauðalæk. „Fyrst átti ég nú heima á Arnkötlustöðum, svo var ég
á Heiði og þar fæddist ég,“ var svar Helga. Að Rauðalæk hafði
hann komið frá Arnkötlustöðum og liðið þar vel, því nefndi hann
þá á undan Heiði.
Handrit Giidlangs E. Einarssonar.
Goðasteinn
19