Goðasteinn - 01.06.1976, Side 23
Bctri heimildir eru um kirkjur, sem gerðar voru úr aðfluttum
við.i og þó sérstaklega stofuna, sem Auðunn biskup lét reisa úr
viði, sem hann fékk tilsniðinn frá Noregi, og líklega hefur orðið
elst hérlendra húsa. Líklega hefur kirkjuviðurinn einnig oft verið
tilsniðinn í Noregi.
Hús gátu raunar enst a.m.k. svo að mannsöldrum skipti þó úr
rekaviði væru. Þegar Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson fóru um
Öræfin 1756, voru skálar í Skaftafelli og Svínafelli, scm enginn
vissi hvenær höfðu verið byggðir, og seinna kom í ljós að sá
þriðji hafði verið í Sandfelli, og er hann raunar sá eini, sem mál er
til af.
í skýrslu til stjórnarinnar frá sr. Brynjólfi Árnasyni sóknar-
presti í Sandfelli, ritaðri 13. nóvember 1817, segir svo:
„Rústir eður leifar af fornmannabyggingum veit ég ekki aðrar
að nefna en skála einn hér í Sandfelli, sem eftir nærverandi formi
er 73/4 alin á lengd, á hæð 51 /2» á vídd 5 al. og 2*/2 kvartil.
Menjar af fornum viðum sjást enn í dag í skála þessum svo sem
biti einn strikaður, á breidd hér um V2 alin. Aðrir bitar, sem í
honum voru til ársins 1815, voru breiðari, en þá orðnir fúnir til
beggja enda, svo að ei urðu notaðir til skálans, sem þá var endur-
bættur. Til nefnds árs sást mæniglugginn mcð fornmannaumbún-
aði og partar af syllum, mikið þykkum, en þá ónýtir sökum fúa.
Fornmannarúmunum, sem í þessum skála voru fyrr meir, var
löngu að úr búið að raska.“ (Stærð breytt lauslega í m: 1. 5,04, b.
3,62, h. 3,45.)
Sennilega hefur verið búið að raska rúmunum úr skálanum
löngu áður en sr. Brynjólfur lcom að Sandfclli, en þó er líklegt
að hann hafi haft nokkuð glöggar sagnir af þeim.
Engar líkur er hægt að færa fyrir hversu gamall þessi skáli
hefur verið, en enginn vafi mun vera á að hann hafi verið gerð-
ur af rekavið.
En víkjum nú aftur að skálavið Flosa. Efnisleysi getur varla
hafa verið ástæðan til ferðarinnar, en ástæðan gæti hafa verið
önnur.
Síðastliðinn vetur var sýnd í sjónvarpinu mynd af gömlum
húsum í Noregi, og voru sum þeirra frá 13. öld, eða eldri, og þó
Goðasteinn
21