Goðasteinn - 01.06.1976, Page 35
jarðeignir og skuldheimtur undir Eyjafjöllum. Sagt er, að Vigfús
hafi þar talið ti.1 skuldar hjá blásnauðri ekkju og er eftir var sótt,
átti hún ekkcrt til að gjalda með nema rauða kvígu. Vigfús tók
hana til sín. Ekkjunni var þá þungt í skapi. Orti hún þessa vísu,
er kvígan var leidd úr hlaði:
Á guð trúi ég en ekki dýr
og ekki á kálfinn rauða,
því aldrei hafa mig ær né kýr
cndurleyst frá dauða.
Aftan við hnýtti hún svo þessum orðum til sýslumanns: ,,Og
farðu svo með fenginn þangað, sem þú átt best hcima,“ og vissu
allir hvað í orðunum lá. Þess ber hér að geta að í minningarljóði,
sem ort var eftir Vigfús sýslumann, segir: „aumkaðist tíðum yfir
ekkjur og börnin smá.“ Eyfellingurinn, sem hermdi mér vísu
ckkjunnar, sagði að Vigfús sýslumaður hefði farið frá henni að
Seljalandi undir Eyjafjöllum, en þar átti hann bú að vitni annála,
enda var jörðin í eigu Gísla lögmanns í Bræðratungu og niðja
hans. Á Seljaland.i tók þá Vigfús sýslumaður banasótt sína og
andaðist eftir stutta legu þann 14. apríl 1647, nær 39 ára að
aldri. Segir Skarðsárannáll, er hann greinir frá dauða hans, að
hann hafi verið „vitur maður og vel lærður, hið mesta mannval
og gagnsmaður þcssu landi við útlenda höfðingja, vel forsóktur
í lagarétti.“
Langt fram eftir 19. öld var ákveðinn hluti vesturbæjarins á
Seljalandi nefndur Fúsakrókur og bar nafn af því að þar átti að
halda til sveimur eftir Vigfús sýslumann og hélst það fram á daga
Magnúsar Magnússonar frá Efri-Rotum, sem sagði mér frá því
1942 þá 78 ára.
Lík Vigfúsar var flutt á kviktrjám til greftrunar út að Stór-
ólfshvoli. Sögn er að líkið hafi fallið úr kistunni á Markarfljóts-
aurum og sótti að mikið hrafnager, sem allt átti að vera komið
úr vonda staðnum. Fylgdi það líkfylgdinni síðan alla leið. Vin
Vigfúsar átti að hafa drevmt hann nýlega dáinn. Honum þótti
hann hafa eitthvað í höndum áþekkt höfuðfati og segja: „Þungt,
þungt, þrír dómar rangir og Illugamálið.“ Á hið síðasta líklega
við galdramál séra Illuga Jónssonar á Kálfafelli í Fljótshverfi.
Goðasteinn
33