Goðasteinn - 01.06.1976, Page 42
og þvílíkan texta fyrir vígsluræðu sína eins og raun var á? Fyrir
því geta að sjálfsögðu verið margar ástæður, en sú veigamesta
mun þó vera sú, að meistari Brynjólfur, svo hreinskiptinn maður
og einarður sem hann var, dró ekki dul á það, að vígsla þessa
manns til hins æðsta kirkjulega embættis væri honum þvert um
gerð og bryti raunverulega gegn guðs og manna lögum. Jón Vig-
fússon var ekki lærður til prests og hafði aldrei verið í þjónustu
kirkjunnar, heldur hafði hann verið sýslumaður og verið dæmdur
frá því embætti. Auk þess sem hann hafði verið orðaður við
galdra og fordæðuskap og neyðst til að sverja sig frá þcim áburði.
Hann kom því á engan hátt inn í sauðahúsið gegnurn dyrnar, svo
sem venja var og vera átti samkvæmt skoðun meistara Brynjólfs
og margra annarra. En Jón kom með magisternafnbót frá kansl-
aranum í Kaupmannahöfn og bréf konungs til Brynjólfs um að
framkvæma þessa einstæðu og óvæntu biskupsvígslu. Undan þeirri
kvöð varð ekki vikist, hversu óljúft sem það var hinum aldna
k.irkjuhöfðingja á Skálholtsstóli.
En víkjum nú lauslega að sögu þessa manns, Jóns Vigfússonar,
er alþýða manna nefndi oft Bauka-Jón, og sem svo óvænt og með
svo furðulegum atburðum kom inn í þjónustu kirkjunnar og í
biskupatal Hólastóls. Jón fæddist að Stórólfshvoli í Rangárvalla-
sýslu 15. september 1643 og var yngstur sona Vigfúsar sýslu-
manns Gíslasonar, Hákonarsonar lögmanns í Bræðratungu og
Katrínar ríku Erlendsdóttur, Ásmundssonar. Var liann því af
mjög dugmiklu fólki. kominn og stóðu að honum ýmsar auðugustu
og áhrifamestu ættir landsins. Snemma var fyrir því hugsað að
koma þessum unga syiii Stórólfshvolshjóna til mennta, svo að
hann gæti fetað sig áfram á braut embætta og frama í landinu,
er hann hefði aldur til. Fátt er þó vitað um skólagöngu hans,
nema hvað hann byrjaði að læra hjá séra Torfa Jónssyni í Gaul-
verjabæ, fór síðan um skeið í Hólaskóla, en hvarf þaðan og lauk
stúdentsprófi við Skálholtsskóla árið 1663. Árið eftir sigldi hann
utan og var skráður í stúdentatölu við Háskólann í Kaupmanna-
höfn haustið 1664. Nám hans þar ytra stóð aðeins í tvö ár, því
að árið 1666 tók hann bakkaláreuspróf við háskólann og sigldi
heim samsumars. Og þessi ungi sýslumannssonur kom þá ekki
40
Goðasteinn