Goðasteinn - 01.06.1976, Page 43

Goðasteinn - 01.06.1976, Page 43
aðeins heim með prófskírteinið sitt, heldur og líka annað skjal, sem var veitingabrcf fyrir Þverárþingi öllu eða Borgarfjarðar- og Mýrasýslu undirritað af hirðstjóra landsins, Hinrik Bjelke. Var sýslumannsembættið þá um lcið tekið af Sigurði lögmanni Jóns- syni, sem farið hafði með það um árabil. Olli þetta að vonum árekstrum og kala milii manna, svo að seint greri um heilt, en vilji hirðstjóra varð fram að ganga og Jón Vigfússon gekk hart cftir sínu. Hinn ungi sýslumaður þeirra Borgfirðinga bjó fyrst í Hjörsey um tvcggja ára skeið, en árið 1668 kvæntist hann Guðríði Þórðardóttur prcsts í Hítarda! Jónssonar og konu hans Hclgu Árnadóttur lögmanns, Oddssonar. Var Guðríður sögð hinn ágæt- asti kvenkostur og með henni fékk Jón til umráða höfuðbólið Lcirá og þangað fluttust þau þegar. Gerðist nú Jón sýslumaður umsvifamikill búhöldur, græddist honum vel fé og hafði hann jafnan m.ikið umleikis. Ekki varð hann vcl kynntur af heldri mönn- um landsins, cn sagður var hann ljúfur og góðgerðasamur við þá, sem minna máttu sín, og kann eitthvað að vera til í því. Ekki hafði Jón sýslumaður lcngi verið í embætti, cr heldur tók að blása á móti fyrir honum. Hlutust vandræði hans frá upp- hafi af samskiptum hans við kaupmannavaldið danska, enda var það ekkert lamb að leika við á þessum einokunartímum. Svo kom og annað til, sem líka setti svipmót á öldina, og það var galdra- trúin, sem ísland fór ekki varhluta af fremur en önnur lönd á 17. öld. Meira að segja sýslumaðurinn á Leirá varð óþyrmilega fyrir barðinu á þcssari áköfu galdratrú og gefur það nokkra vís- bendingu um það orð, sem af honum fór, og það álit, sem fólk hafði á honum. Upphaf þessara mála var það, að sumarið 1669 sigldi danskt kaupfar í fyrsta sinn inn á Straumfjarðarhöfn tii viðskipta við landsmenn. Fara ekki sögur af verslun kaupmanna, cn sakir þess, scm á eftir fylgdi mun Jón sýslumaður eitthvað hafa komið þar við sögu. Skip þetta sigldi utan og strandaði þá við Noreg. Næsta sumar eftir kom annað skip á Straumfjörð og meðan það lá þar, barst kæra frá skipstjóra þess, Thor Gunnerson, til yfirvalda á Bessastöðum á hendur Jóni sýslumanni. Kvartaði skipstjóri yfir því að Jón hefði sýnt sér margvíslegan yfirgang og ráðist á sig Goðasteinn 41

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.