Goðasteinn - 01.06.1976, Page 44
og stýrimann sinn með höggum og ofbeldi og hótað því að skip-
stjóri mundi rata í mikla ógæfu og að skip hans mundi ekki ná
til heimalands síns aftur. Mæltist skipstjóri tii þess að yfirvöld
neyddu Jón sýslumann til að leggja fram fé til ábyrgðar skipinu
og mundi hann að öðrum kosti neyðast til að setja það upp.
Ekkert var þó aðhafst í málinu og töldu menn þetta hugleysi af
skipstjóra. Lét skipið um síðir í haf, en þá tókst svo illa til að
það strandaði á Landeyjafjöru. Fórust af því tveir menn og
varningur spilltist og eyðilagðist.
Hlaust af þessu mikið umtal og var skipstrandið af mörgum
eignað gjörningum Jóns sýslumanns. Kom málið fyrir á alþingi
árið eftir og dæmdu lögmenn báðir sýslumann tii að sverja af sér
galdraáburðinn. Fór sú eiðtaka fram á Smiðjuhóli hinn 8. júlí
1671 í viðurvist Jóhanns Klc.lns fógeta. í eiðstafnum, sem fyrir
sýslumann var lagður, er kveðið fast og forstakslaust að orði, því
að þar sagði: „Til þess legg ég, Jón Vigfússon, hönd á helga bók
og það segi ég guði almáttugum, að ég hef aldrei á ævi minni
galdur eður fordæðu lært né um hönd haft til brúkunar og aldrci
í ráði, vitorði né samsinning verið með nokkurri karlmanns- eður
kvenmannspersónu í galdurs- eður fordæðuskapargerningi, og ei
er ég, Jón Vigfússon, vaidur töpunar skips eður góss, ógæfu né
ófara neinna þcirra manna, sem voru að Straumfirði cður í á
næst um liðnu sumri, 1670, hverjir sitt skipbrot liðu á Kotafjöru
í Vestari Landeyjum á íslandi."
Að eiðatöku þcssari lokinni hefði mátt ætla að Jón væri laus
ailra mála vegna viðskipta við danska. kaupmannavaldið, cn það
var nú eitthvað annað, því að óðar dró upp nýja ófriðarbliku.
Svo var mál með vexti að einn frænda Jóns, Torfi Hákonarson
að nafni, hafði sest að úti í Hollandi. Talinn var maður þessi
drengur góður, en fremur auðnulítill, einkum í fjármálum. Hafði
hann sér það helst til framfæris að koma hingað til lands á sumr-
um og eiga viðskipti við landa sína. Lét hann þá útlenda vöru
í skiptum fyrir ísienska og hafði svo farið fram um skcið. Snemma
sumars 1671 kom Torfi þessi með duggu til Krossvíkur á Akra-
nesi og fór þá tii sýslumannsins, frænda síns í heimsókn. Reið
sýslumaður með honum aftur til skips og fer engum sögum af,
42
Goðasteinn