Goðasteinn - 01.06.1976, Blaðsíða 45
hvað þeim fór á milli. En skömmu síðar bar það við, að Torfi
flutti á land á Skipaskaga sex rullur af tóbaki og lét í búð manns
nokkurs, er oft geymdi vörur sýslumanns. Nokkru síðar komu
svo vinnumcnn sýslumannsins og fluttu tóbakið heim að Leirá.
Þeir Bessastaðamenn komust á snoðir um þcssa fíutninga og lctu
taka dugguna og færa suður til sín, en Torfa fóru þcir með til
alþingis, svo að hann gæti þar staðið reikningsskap gerða sinna í
lögréttu. Torfi sagði þar skýrt og skorinort að tóbakið hefði Jón
sýslumaður keypt af sér og samkvæmt því hcfði hann flutt það
í land. Hins vegar hcfði umsamin grciðsla ekki enn borist fyrir
vöruna. Jón sýslumaður gaf óðar gagnstæða yfirlýsingu. Kvaðst
hann hafa séð um borð í skipinu, hvernig allt var í pottinn búið
og hefði hann þá merkt tóbaksrullur þessar mcð krít og sett á
þær stafi konungs og skilið þær þar cftir. Stóð því þarna stað-
hæfing gegn staðhæfingu. Torfa var samt sleppt við svo búið og
fór hann slyppur og snauður til Hollands, cn tóbakið var gcrt
upptækt og flutt til Bcssastaða. Lá þctta mál síðan niðri um eins
árs skeið og hefði að líkindum ckki orðið meira úr, ef Jón sýslu-
maður hefði ekki á alþingi gerst helst til þungorður við fógetann,
Jóhann Petersen Klein. Mislíkaði fógeta svo við hann, að hann
ákvað að taka þetta tóbaksmál upp að nýju og stefndi Jóni sýslu-
manni til dóms Sigurðar lögmanns Jónssonar að Heynesi á Akra-
nesi hinn 3. ágúst 1672. Var þar fátt um varnir af hálfu sýslu-
manns, því að hann gat á engan hátt sannað sögu sína um að
hann hefði merkt konungi vöruna og gat enginn vitnað það mcð
honum. Var hann þá án tafar dæmdur frá embætti fyrir ólöglega
vcrslun og lögsagnarar settir yfir sýslur hans.
Virtust nú öll sund lokuð á embættis- og framabraut Jóns
Vigfússonar og bjó hann búi sínu að Leirá sem afdankaður sýslu-
maður. En þessi dugnaðarmaður var samt ekki af baki dottinn,
þótt á móti blési um sinn, því að þegar á næsta árið 1673, sigldi
hann til Kaupmannahafnar til að freista þess að fá þar nokkra
leiðréttingu mála sinna. Segir fátt af ferð hans, nema hvað hann
kom ár sinni vel fyrir borð hjá Kristjáni konungi fimmta og þó
einkum kanslara hans, Pétri Griffenfeldt, scm sagt var að hcfði
þegið mikið fé af Jóni. Kom Jón heim aftur sumarið 1674 og
Goðasteinn
43