Goðasteinn - 01.06.1976, Qupperneq 48
að skyndilega gekk upp fárviður úr nýrri átt. Komu danskir kaup-
menn þar við sögu, með því að þeir höfðu upphafið gegn biskupi
mikla ófrægingarherferð erlendis. Báru þeir honum á brýn að
hann ræki mikla og óleyfilega verslun og okraði stórlega á tóbaki
og öðrum ónauðsynlegum varningi.
Kristján Miiller amtmaður, sem var þá nýkominn til landsins,
og Heidemann landfógeti, brugðu við hart og riðu norður í land
sumarið 1688 til að rannsaka þessar ákærur á biskup. Héldu þeir
þing í Viðvík og stefndu þangað kaupmönnum og öllum öðrum,
sem þættust hafa kærur á hendur honum. Var þing þetta hið sögu-
legasta og má segja að þarna hafi brotist út almenn óánægja
alþýðu manna fyrir norðan með Jón biskup og ráðsmennsku hans.
Kaupmenn kærðu hann fyrir launverslun og leiddu fram vitni.
Aðrir báru að biskup hcfði sent þá út í hollenskar duggur og
önnur skip til að kaupa vörur, og buðu fram bréf og skjöl máli
sínu til sönnunar. Þá kom og fram að biskup hefði neytt margra
af landsetum Hólastóls, einkum í Fljótum, til að selja sér hálf
skip þeirra, og hótað þeim öllu illu að öðrum kosti. Einnig kom
fram að víða hafði hann aukið við kúgildi á jörðum stólsins og
lagt á bændur óvenjuleg lambseldi og aðrar nýungar. Vitnuðu
þetta bæði lærðir og leikir og ráku þeir amtmaður og fógeti þing-
haldið í Viðvík áfram af mikilli hörku og miskunnarleysi. Inn í
mál þessi blönduðust og deilur milli biskups og landfógeta og bætti
það ekki úr skák fyrir Jóni. Eftir að þingvitni höfðu verið tekin
um ailt þetta, voru skýrslur og málskjöl óðar send konungi og
ráðgjöfum hans.
Vorið 1689 komu út bréf konungs varðandi þetta mál. Skrifaði
hann landfógeta annars vegar og hins vegar Miiller amtmanni,
Þórði biskupi og lögmönnunum báðum. Skyldu hinir síðar nefndu
dæma um kærur á hendur Jóni biskupi bæði út af óleyfilegri
verslun og yfirgangi við almúgann, en Heidemann fóge.ti skyldi
sækja málið á hendur honum. Þeir amtmaður og fógeti riðu þá
aftur norður það sumar og héldu á ný þing í Viðvík til frekari
rannsóknar. En Jón biskup mætti ekki til þessa þings og var allur
á bak og burt. Hafði hann brugðið sér vestur á land, komist í
skip í Grundarfirði og siglt þaðan, þótt hann hefði ekki nauðsyn-
46
Goðasteinn