Goðasteinn - 01.06.1976, Blaðsíða 51
hafa komið þessum hæstaréttardómi til leiðar, er svo mjög hreins-
aði minningu föður hans og bjargaði fjárhag vandamanna hans.
Jón biskup Vigfússon og Guðríður Þórðardóttir kona hans áttu
alls níu börn, svo sem fyrr sagði. Komust þau flest vel til manns,
giftust og áttu börn og á mikill sægur fólks ættir að rekja til þessa
umdeilda Hólabiskups. Kunnust af börnum þeirra voru Þórður, er
lengi var prestur og prófastur á Staðarstað, Sigríður eldri, sem
giftist Magnúsi Björnssyn.i á Espihóli, Sigríður yngri, sem varð kona
mcistara Jóns biskups Vídalíns í Skálholti, og Þórdís, er var allra
kvenna vænst, en ekki gæfusöm að sama skapi, með því að hún
giftist sautján ára að aldri drykkjusvolanum Magnúsi Sigurðssyni
í Bræðratungu og bjó með honum við lítið atlæti, svo sem frægt
er orðið.
Jón biskup Vigfússon átti stormasama ævi og sakir málaferla
og ófriðar, sem sífellt fylgdu honum, hefur hann ekki hlotið það
eftirmæli, er hann að sumu leyti hefði verðskuldað, því að hann
hafði hlotið góðar gáfur og mikla hæfileika í vöggugjöf.
Hann varð sýslumaður í Borgarfjarðar- og Mýrasýslu aðeins 23
ára að aldri og því embætti hafði hann gegnt í sex ár, er hann var
dæmdur frá því. Hann sat þá embættislaus á Leirá í tvö ár og
sem vígður varabiskup í tíu ár þar á eftir. Virðist honum hafa
vegnað best á þeim árum, sem hann hafði engu embætti að gegna.
Biskup á Hólum var hann svo síðustu sex æviárin og var það
stormasamasti kafiinn í lífi þessa atorkusama og fyrirferðarmikla
athafnamanns. Og í rnjög svo umdeildum biskupsdómi andaðist
hann aðeins 47 ára að aldri.
Þegar litið er yfir feril þessa umdeilda manns, sem bæði gegndi
embætti sýslumanns og biskups og hélst ekki við í hvorugri stöð-
unni, kemur manni helst í hug að ógæfa hans hafi einkum stafað
af því, að hann hafði aldrei fyrir því að koma inn í sauðahúsið
gegnum dyrnar, svo að vitnað sé til þess texta úr ritningunni, sem
meistari Brynjólfur valdi, er hann samkvæmt konungsboði vígði
þenna litríka mann til biskups hinn 23. ágúst 1674.
Goðasteinn
49