Goðasteinn - 01.06.1976, Page 59

Goðasteinn - 01.06.1976, Page 59
Vísa Benedikts skálda Þegar Bcnedikt Þórðarson skáld reið austur með Eyjafjöllum með Öfjörð sýslumanni og drukknuðu á Mýrdalssandi 14. sept. 1823, komu þeir að Steinum og beiddust beina. Fengu gráunguð cgg hjá Halldóri, sem kallaður var kjaftur, bóndi þar. Er það skylt fyrir unga grá, cr ég held mcð bcinum, að heiðra manninn, Halldór k, höfðingja í Steinum. U/n lœkningar Maðra kvað vera holl til að drekka seyði af við brjóstveiki, hvort sem er gul eða hvít. Maðarjurt kvað vera holl í skepnur í veikindum. Seyða verð- ur ræturnar. Heimulurótarvatn ágætt við ormum í börnum og til að laxera með, en ekki má það vera sterkt handa börnum. Ráð Þórunnar grasakonu í Reykjavík 1921 við magasjúkdómi Jóns á Ægissíðu: Litunarmosi, hreinsaður, soðinn í vatni, þarf ekki mikla suðu. Hófrót, soðin í vatni, þarf meiri suðu. Hella síðan saman hclming af hvoru. Ráð Sigurborgar Sigurðardóttur í Vestmannaeyjum, samsuða handa konunni: Einir, hvönn, hcimulurót og heiðargrös. Samsuða handa mér: Baldinbrá, biðukolla, hófrót, blóðrót og meliihvolia. Potthrím hrært saman við ósalt smjör er góður áburður við náristli. Á kartneglur má bera eftir þvott á kvöldin fótafeiti brædda saman við mergfeiti. E. Einarsson. I skurði og sprungur er gott að hafa eyrnamerg. Við holdsveiki: Brúka sem minnsta smjörfeiti til matar. Lausnarsteinn. Halda má honum lifandi með því að hafa hann í hveiti í hreinni tusku, undir handarkrika og þvo hann á hverju laugardagskveldi úr tæru vatni. Goðasteinn 57

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.