Goðasteinn - 01.06.1976, Blaðsíða 61
Forspá Vestmannaeyjahrafna
Gísli sonur séra Péturs Gissurarsonar var drukkinn, cr kona
hans leiddi hann í byrgi eitt og lét þaö falla ofan á hann, svo
hann beið bana af. Hrafnar flugu hjá presti, þá hann var sóttur
að skíra, og spurði fylgdarmaður, er sótti Pétur prest, hvað hrafn
segði. ,,Nú á ég að skíra sonarbana minn.“ Barnið var Ingibjörg
kona Gísla Péturssonar, en hefnt hafði hcnni verið fyrir glæpinn.
tJr vísnasafni
Árni bóndi Egilsson í Dufþekju mætti manni, er spyr, hver
hann sé:
Eg heiti Árni, Egilsbur,
úr Hvolhreppi blámagra,
og ætla að ríða, ef þú spur,
upp í Hlíð dáfagra.
Jón á Bjólu hafði verið að raula þessa stöku, þegar hann fór
síðast í ferð og dó í Krísuvík:
Aldrei fyrr mér úti brá,
eitthvað fvrrist kraftur.
Hvað mun dagur heita sá,
•cr hingað kem ég aftur?
Ort um klifin upp á Síðufjall milli Foss og Hörgslands af
Sigurði nokkrum, er var á Hörgslands Hpspitali:
Stakkarák og Stigaklif
strákótt er að ganga,
Sauðagjót og Selklifið
og Súlubrekku langa.
Milli lækja og Merkjadals,
Murnabrúnin líka,
hver sem þetta hleypur alls,
hann má reyna á kríka.
Goðasteinn
59