Goðasteinn - 01.06.1976, Blaðsíða 72
urður minn“, segir hún. „Ég skal bæta við hann, bæði brauði;
ég á gott brauð, og ég á kökur, svo skal ég koma með svolítinn
bita ofaná.“ Og hún kemur með brauð og kökur og hún kemur
með stykki af lundabagga og segir: „Það er verst, ef hann hefur
ekki nema ónýtan hníf, þá verður annaðhvort að skera það svo-
lítið niður fyrir hann, en þó svo það hangi vel saman. Ég er
hérna með bréf, sem ég skal vefja utan um það, en ef hann hefur
góðan hníf, þá getur hann þetta sjálfur." Þá tekur aumingja karlinn
upp hnífinn og hristir hann, og hann geltir í hálsliðnum. Þá fer
Sigurður í vasa sinn og tekur upp lítinn sjálfskeiðung en fallegan
og fær honum, svo það skal ekki standa á því. Fer hann svo með
mikið guðsorð á vörunum og biður þeim allrar blessunar á meðan
þau þurfi og lifi.
Fyrir austan Skúmsstaði, dálítið austur með Skúmsstaðavatni,
er ós, sem rennur framúr, framí Austurdamm, sem kaliaður er,
og hann er kallaður Engjhólsós. Þegar þangað kemur, þá sjá þeir
heiman frá Skúmsstöðum, - það er ekkert langt - að maður
kemur á eftir manninum, sem fór fyrst, labbar svolítinn spotta á
eftir honum, og þegar gætt er betur að, þá er annar kominn þar
á eftir, og þeir labba þarna þrír i röð með svolitlu millibili áfram
austurúr og hverfa svo sjónum þeirra, þegar þeir koma upp á þessa
stóru og miklu Sorabrú, sem kölluð er, fyrir utan Sigluvíkurkirkju.
Það var talið standa svo á þeim förunautum, að þessi maður,
sem fyrst kom að Skúmsstöðum, hafi verið félagi þeirra. Skipinu
barst á og hinir báðir, blessaðir mennirnir drukknuðu. Og þessi
var svo mæddur og einmana, að hann gat ekki verið neinum
samferða á lciðinni austur. Slysið hafði skeð um vertíðina, seinni
part vetrar. Hann var fullorðinn, þessi maður og dugnaðarmaður,
en hitt voru blessaðir unglingar, annar ekkert skegg farinn að fá,
en hinn búinn að fá svolítið yfirskegg, eins og þá gerðist.
Sigurður á Skúmsstöðum sagði mér sjálfur þessa sögu.
-o-
Tekið eftir segulbandsupptöku frá 25. október 1968. Frásögn
frú Herborgar Guðmundsdóttur frá Grímsstöðum í Landeyjum,
70
Goðasteinn