Goðasteinn - 01.06.1976, Qupperneq 80
Hjónin á Grjótá, Teitur og Sigurlaug.
um, átti Guðrúnu Þorsteinsdóttur frá Hólakoti. 3. Haildór, átti
Aðalheiði Sveinsdóttur frá Valdalæk í Húnaþingi, bjuggu á Kot-
múla. 4. Ástríður, átti Snorra Jónsson frá Lambalæk, bónda í
Skálakoti undir Eyjafjöllum. 5. Þórunn, átti Þórð Sigurðsson frá
Finnshúsum. 6. Einar, átti Þórdísi Sveinsdóttur frá Stóru-Borg
undir Eyjafjöllum. 7. Teitur, f. í Teigi 22. septcmber 1843.
Þau Grjótársystkin þóttu mannvænlegt fólk, og voru sumir
bræðurnir þekktir fyrir snjöll tilsvör og meitiaða frásögn. Hag-
orðir voru þeir bræður flestir, og þó einkum Jón eldri, bóndi á
Mið-Sámsstöðum, sem orti formannavísur og ýmsar lausavísur um
menn og málefni, og þó oftast um barnabörn sín, sem ólust upp
með honum á Sámsstöðum.
Teitur ólst upp með foreldrum sínum á Grjótá, og að þeirrar
tíðar hætti tók hann snemma þátt í öllum venjulegum bústörfum.
Með aldri og þroska fór hann í útver, svo sem þá var siður ungra
manna, og aflaði svo fanga fyrir heimili foreldra sinna og síðar
sitt eigið heimili og reri hann þá oftast í Þorlákshöfn, en á þeim
árum var þar allmikil útgerð á opnum skipum og reru þar þá
margir Rangæingar og drýgðu með því tekjur sínar. Var afli þar
oft góður af þorski og öðru góðfiski.
78
Goðasteinn