Goðasteinn - 01.06.1976, Side 81

Goðasteinn - 01.06.1976, Side 81
Teitur á Grjótá var meðalmaður á vöxt, þykkur undir hönd, glaðlegur á svip, ræðinn og léttur í máli, glöggur á búfé og þó einkum afburða glöggur á menn, þekkti alla aftur, sem hann sá einu sinni, jafnvel þó mörg ár liðu þar til hann sá menn aftur. Árið 1873 urðu þáttaskil í lífi Teits Ólafssonar. Þann 24. október það ár gekk hann að eiga hcitmey sína, Sigurlaugu Svcins- dóttur frá Lambalæk, sem áður var getið. Þau hófu búskap á Grjótá á móti Jóni cldra, bróður Teits, það sama ár, en Jón hafði tekið þar við hálfri jörðinni 1. júní 1872 og bjó þar til ársins 1887 að hann flutti að Mið-Sámsstöðum og bjó þar síðan. Þegar Jón hætti búskap á Grjótá tók hans ábúðarhlut Sveinn Sveinsson frá Kirkjulæk og bjó þar með konu sinni, Arnbjörgu Guðmundsdóttur til dánardægurs, en hann lést árið 1893. Þau Teitur og Sigurlaug tóku þá alla jörðina og bjuggu þar til ársins 1910, en það ár tók Sveinn sonur þeirra hjóna við búi og jörð á Grjótá og bjó þar með konu sinni, Vilborgu Jónsdóttur frá Kirkjulæk í 45 ár eða þar til hann andaðist hinn 28. septembcr 1955. Þau Teitur og Sigurlaug bjuggu notalegu búi á Grjótá þó ekki mættu þau kallast rík, en skortur var þar aldrei í búi,afkoman mun hafa verið svo scm gerðist á flestum bæjum í Fljótshlíð á þeim árum. Teitur var lagvirkur maður, sneið og saumaði mikið af skinnklæðum, sem þóttu vel unnin og vönduð að allri gerð, einnig var hann eftirsóttur hleðslumaður við húsabyggingar, en þá voru öll útihús byggð úr grjóti og torfi og varð því að vanda allan frágang veggja svo sem kostur var, vann Teitur því oft utan heimilis hjá nágrönnum við byggingar og fleira og stjórnaði Sigur- laug þá búinu af festu og myndarskap, en hún var talin greind kona og ákveðin í skoðunum, meðalkona á vöxt, hæg í framkomu og tali, góð búkona. Oft var gestkvæmt á Grjótá hjá þeim Teiti og Sigurlaugu, margir áttu erindi við húsbóndann, því eins og fyrr segir, var Teitur oft hjálplegur við nágranna sína og komu því margir í ýmsum erind- um. Bæði voru hjónin gestrisin og ræðin, börn af næstu bæjum komu þar oft saman til leika og mættu jafnan hlýju og skilningi húsbænda, var þá stundum gleði og glaumur á Grjótá, farið í ýmsa leiki og sungin kvæði, farið með vísur og gátur og kveðist á. Allt Goðasteinn 79

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.