Goðasteinn - 01.06.1976, Page 82
þetta þótti góð skemmtan og þó einkum söngurinn því bæði voru
hjónin söngvin og lagsæl, mun það enn vera ríkur þáttur mcð af-
komendum þeirra.
Börn þeirra Tcits og Sigurlaugar urðu alls sex, tvö létust í æsku,
Helgi og Ólöf. Þau sem upp komust voru: Sigríður, f. 1874,
giftist Þórði Magnússyni frá Finnshúsum, þau bjuggu í Reykjavík
og áttu tvö börn, dreng sem dó ungur og dóttur sem lifir. 2.
Þórunn f. 1876, giftist Jóni Björnssyni frá Stöðlakoti, þau bjuggu
í Bollakoti og áttu tvo syni. 3. Sveinn f. 1879, bóndi á Grjótá,
átti Vilborgu Jónsdóttur, sem fyrr segir, áttu fimm börn, eitt lést
í æsku en fjögur eru á lífi. 4. Ingilaug f. 1884, átti Guðjón Jóns-
son bónda í Tungu og fjögur börn. Ingilaug er nú ein á lífi þeirra
Grjótár-systkina og dvelur á heimili sínu í Tungu og vinnur hvern
dag við tóskap og önnur heimilisstörf. Auk barna sinna ólu þau
Teitur og Sigurlaug upp stúlkubarn til átta ára aldurs, það var
Steinunn Sveinbjarnardóttir, scm lengi hefur verslað í Hafnarfirði.
Á síðastliðnu ári voru liðin eitt hundrað ár frá giftingu Teits
og Sigurlaugar á Grjótá og 128 ár frá því að foreldrar Teits,
Ólafur og Þórunn hófu búskap á þeirri jörð og hafa afkomendur
þeirra búið þar óslitið síðan. Þau Teitur og Sigurlaug létust bæði
á Grjótá hjá syni sínum og tengdadóttur, hún 21. janúar 1915,
hann 21. apríl 1921.
Vissulega fóru sorgir og erfiðleikar ekki hjá garði á Grjótá,
ásatvinamissir og ýmis áföll máttu þau Sigurlaug og Teitur reyna,
cn samhugur og traust skapgerð fleytti þeim yfir þau sker og góð
vinátta, traust og virðing granna og annarra samferðamanna fylgdi
þcim til æviloka.
Skráð 1974. O. G.
80
Goðasteinn