Goðasteinn - 01.06.1976, Qupperneq 84
spyrst um nágrennið gengur Runólfur heitinn á Rauðalæk á tal við
mig og segir: „Heyrðu Þorsteinn, ég hefi heyrt því fleygt, að þig
langi til að byggja austan við ána, í Rangárvallahreppnum.“
„Já, ég var að spekúlera í því“, svara ég, ,,mér líkar staðurinn
betur þar.“
Þá segir hann: „Ég skal gefa þér lóð undir fyrirtækið þitt, svo
stóra sem þú telur þig þurfa, allt utan frá Brekknaholti austur að
Ægissíðu.“
„Þakka þér nú fyrir þetta höfðinglega boð, Runólfur minn,“
svara ég, ,,en ég ætla að kaupa land á eystri bakkanum. Mér líst
betur á mig þar.“
Á Helluvaði situr Gunnar Erlendsson, og fala ég af honum
spildu. Þykir mér hún seld nokkuð dýru verði, en kaupi samt,
því austan ár skal verslunarhúsið rísa af grunni. Landið, sem ég
eignast þarna, er smásnepill, hefur sneiðst af Helluvaðslandi að
brautinni, þar scm hún liggur í boga frá ánni, og suður að Gadd-
staðamörkum. Og fyrir þennan smá-bölvaða-snepil greiði ég þús-
und krónur, geypiverð í þá daga. En þetta er góður staður að
ýmsu leyti. Þarna er nægt vatn, en hvergi gott vatnsból vestan ár,
og svo er fegurðin mikil. Áin falleg.
Og þá er komið að því að byggja.
Verslunarhúsið á að vera tvílyft og undir steyptur kjallari. Ég
panta frá Noregi tilsniðið timbur, hverja spýtu telgda í tólf sinnum
tólf. Ég steypi kjallarann og bíð síðan eftir timbrinu. Ég á að
greiða timbrið við afhendingu og fer á stúfana eftir mönnum að
hjálpa mér með víxil. Þeir koma brátt í leitirnar. Jónas ríki, sem
kallaður var, á Hóli í Landeyjum, ætlar að gefa víxilinn út og
Guðjón heitinn í Ási að vera ábyrgðarmaður. En þá fellur 500,00
króna víxill á Jónas, og ber hann sig illa og segir, að hann geti
ekki gengið í ábyrgð fyrir mig. Hann sé fallinn hjá honum Gunnari
á Selalæk og verði trúlega að borga allt saman.
Nú þykir mér heldur syrta í álinn. Skipið kemur innan fárra
daga með timbrið, og engir peningar að greiða með viðinn. Ég
sé eklci aðra leið en að halda á fund míns besta velgerðarmanns,
Einars á Bjólu, og spyr, hvort hann vilji skrifa upp á fyrir mig
með honum Guðjóni.
82
Goðasteinn