Goðasteinn - 01.06.1976, Page 92

Goðasteinn - 01.06.1976, Page 92
]ón R. Hjálmarsson: Stríðið heldur áfram SMÁSAGA Það er misjafn sauður í mörgu fé, segir orðtakið, og er mikill sannleikur í því fólginn. En óvíða á þessi speki jafnvel við og í hópferðum innan lands og utan. Þá fyrst skynjar maður rækilega fjölbreytilcika og blæbrigðamun cinstaklinganna, er þeir fá tæki- færi til að þjóna kenjum sínum og duttlungum við misjöfn skil- yrði og margvíslegan aðbúnað í langferðum um byggðir og óbyggð- ir. Sumir eru sífellt glaðir og þægilegir á hverju sem gengur, ör- fáir eru önugir og viðskotaillir, cn stærsti hópurinn liggur einhvers staðar þar á milli. Oft hef ég verið leiðsögumaður með hópum útlendinga hér um landið og á margar skcmmtilegar endurminningar frá þeim ferðum. Má raunar fullyrða að flestir þcir, sem hingað koma sem ferðamenn og njóta leiðsagnar kunnugra heimamanna v.ið að skoða fegurstu staði íslenskrar náttúru, fari héðan glaðir og ánægðir og hafi þá gjarna við orð, að hingað vilji þeir koma sem fyrst aftur. Og það gera líka ýmsir þeirra, þótt íslandsferðir séu miklu dýrari en margar aðrar ferðir á markaðinum. En einn var sá maður í hópferð fyrir nokkrum árum, sem ekki hafði í hyggju að koma hingað í bráð aftur, heldur þóttist hann vera feginn að komast á braut eftir kynni sín af útskeri þessu. Það var stór hópur, sem ég var með í þctta skiptið og fólk af ýmsum þjóðernum, en mest var þar af Austurríkismönnum og Þjóðverjum. Nefndi fólkið sig gjarna Miðevrópubúa án frekari skilgreiningar, Ég tók á móti ferðalöngunum á flugvellinum við Keflavík og ók með þeim til Rcykjavíkur til gistingar. Leist mér 90 Goðastebm

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.