Goðasteinn - 01.06.1978, Blaðsíða 16
scm Helga sá Einar, var hún nýlega fermd og var með Guðrúnu
sinni að færa fólkinu mat á engjar. Voru þær á hcimleið með tómar
eltiskinnsskjóður, sem sumt af matnum var borið í, t.d. smjör og
brauð. Sáu þær þá Benedikt og Einar koma ríðandi uppi á leitunum.
Munu þeir hafa verið að koma frá Akureyri á leið til Ljósavatns.
Átti Benedikt þá heima þar. Vildu þær stúlkurnar þá fara ofar til
að mæta þeim eigi, en Benedikt gamli þekkti þær og kallaði hátt:
„Skakkt stelpur! Komið hér,“ og gaf þeim aura. Þegar þær fóru,
sagði hann svo: ,,Og farið nú með buddurnar ykkar.“ Einar sagði
við þær í þessum orðaskiptum: „Verið þið ekkert hræddar við
hann, komið til hans.“
Helga mundi eftir Þorláki á Stóru-Tjörnum, er síðar fór til
Ameríku. Segir hún að einu sinni sem oftar hafi hann komið að
finna föður hennar, því þeir voru vel kunnugir. Var Þorlákur barn-
góður, lék sér við systurnar, lét þær fara í feluleik og lyfti þeim
upp á fjalirnar í húsunum, sem þær aldrei höfðu komið upp á.
Þótti þeim þetta besta skemmtan.
Tryggvi Gunnarsson og Halldóra Þorsteinsdóttir frá Hálsi bjuggu
á Hallgilsstöðum. Voru þau fátæk. Elísabet og Sigríðarstaðafólkið
sendi þeim bæði skyr og smér. Halldóra var hin vænsta kona en
heilsulítil mjög. Tryggvi kom að Hálsi, þegar Helga var orðin þar
prestkona, og sagði þá að m.ikið hefði sig langað til að ná í Sigríðar-
staði, þegar Helga amma hennar hætti búskap og fór til dóttur
sinnar á Möðruvöllum. Sigríðarstaða Helga hefur sagt að þar hafi
nú staðið styrinn um, því þeir Benediktssynir frá Stóruvöllum
hefðu reynt að hreppa Sigríðarstaði eftir föður sinn, seinni mann
Helgu, en Skúli var óðalborinn til jarðarinnar og fékk haldið henni.
Frú Helga segir frá því, að þegar hún var telpa á Sigríðarstöðum,
var þeim börnunum boðið ásamt foreldrum og öllu fólkinu, sem
komist gat frá S.igríðarstöðum í brúðkaupsveislu að Stóru-Tjörnum.
Giftu sig þá Gísli og Elínborg. Helga segir að pabbi hennar hafi
reitt sig, en allt fólkið fór ríðandi í blíðskaparveðri, að vori að hana
minnir.
Sátu konur úti og greiddu sér við lækinn á Stóru-Tjörnum. Þetta
var fyrsta brúðkaupsveislan, sem Helga var í. Arnfríður á Ljósavatni
skautaði brúðinni, seinna kona Stefáns í Möðrudal. Þótti basl Þing-
eyingum, er Stefán vildi heldur vera í Möðrudal og þótti minna til
14
Goðastehm