Goðasteinn - 01.06.1978, Blaðsíða 20
að þær hefðu orðið kyrrar á Þverá, en er það vitnaðist að þær
hefðu farið þaðan um nóttina, var farið að leita. Þær fundust
eftir 11 dægur. Alltaf var hríð meðan á leitinni stóð. Þær fundust
loks báðar saman á Fljótsheiði (man samt ekki hvað heiðin var
kölluð þarna) og báðar örendar, þó haldið jafnvel að önnur þeirra
hefði verið með lífsmarki. Slóðir þeirra sáust í túninu á Halldórs-
stöðum við Myllulækinn. Sást að önnur hafði farið ofan í lækinn
með fótinn.
Gestnauð var mikil á Hálsi og öllum vel fagnað. Er það sam-
mæli manna um séra Pétur og frú Helgu að aldrei var hjá þeim
gerður mannamunur, aliir voru jafn velkomnir, æðri sem lægi og
aldrei tekin borgun fyrir greiða. Hestunum var hýrt ekki síður en
gestunum. Oft voru margir hýstir fleiri daga í senn. Allur viður-
gerningur var hinn besti og stórmannlegasti. Var frú Helga mikil
forsjárkona og hafði nægar og góðar vistir í búi. Kunni hún vel
að geyma íslenskan mat, súran og saltan. Sagði prófessor frá Ástralíu
að þá fyrst, er hann hafði dvalið eina viku á Kálfafellsstað, skildi
hann hve íslenskt mataræði væri hollt og gott og ætti vel við lofts-
lag landsins. Þetta sá hann í matnum, sem frú Helga var búin að
geyma frá hausti fram á sumar.
Jóhanna dóttir séra Péturs og frú Helgu fæddist 19. apríl 1888.
Var þá allt lagt með ís og snjó og allir lækir á haldi, svo riðið var
á rifahjarni milli Háls og Sigríðarstaða. Þinghús var á Hálsi. Vorið
1890 var þar þingað laugardaginn fyrir trinitatis af Benedikt Sveins-
syni sýslumanni og allir þingbændur mættir. Var öllum gefið kaffi.
Á trinitatis, 1. júní, var fermt á Hálsi og var þá mikil önn við kaffi-
veitingar og við að búa börnin, skauta stúlkunum og búa sem best
var hægt. Höfðu þá Helga og stúlkur hennar mikið að snúast. Um
kvöldið, er allir gestir voru farnir og heimilisfólk allt farið að hátta
og prestskonan að búa sig til hvílu, þá langt komin á leið að Jar-
þrúði dóttur sinni, sá hún að hópur af fólki kom ríðandi heim á
hlað. Var þetta séra Arnljótur Ólafsson með alla sína fjölskyldu.
Var strax brugðið við og farið ofan til að taka á móti gestunum,
elda mat og búa upp rúm, en tveir eða þrír næturgestir voru fyrir.
Allt þetta fólk fór ekki af stað fyrr en síðla næsta dag. Séra Arn-
ljótur var þá nýorðinn prestur á Sauðanesi og var að flytja búferlum
þangað austur. Var slæmt veður, er fólkið bjóst brott og gránaði
18
Goðasteirm