Goðasteinn - 01.06.1978, Side 21

Goðasteinn - 01.06.1978, Side 21
í Fljótsheiði. Ekki var þá að fullu tekinn upp gaddur við bæinn á Hálsi. Heiga ól Jarþrúði dóttur sína aðfaranótt þriðjudagsins 3. júní. Yfirsetukona var Sigurbjörg á Holtsgerði á Svalbarðsströnd, sem þá var orðin ekkja. Voru þær Helga og hún vinkonur. Einnig var sent að Lundi til Sigurveigar, móður systranna á Hróarsstöðum. Komu þær jafnt að hliðinu á Hálsi. Sigurveig var þá yfirsetukonan og gekk allt vel við fæðinguna. Vorið 1893 fluttu séra Pétur og Helga frá Háisi að Kálfafells- stað í Suðursveit. Lögðu þau af stað í ferðina um miðjan dag um fardagaleitið. Foreldrar Helgu fylgdu henni. Með í för voru Björn Klemenzson vinnumaður á Sigríðarstöðum, sem vistast hafði til prestshjónanna, ágætur maður og trúr, og Vilborg Jónsdóttir frá Litlutungu í Bárðardal, seinna lengi við Edinborgarverslun, ágætis stúlka. Var þeim báðum eins treystandi fyrir annarra eigum eins og þau ættu þær sjálf. Fnjóská var farin á ferju hjá Skógum. Ferjumaður var Einar í Skógum, sem var kvæntur systur Jóhanns Bessasonar, föðursystur Unnar konu Kristjáns Skúlasonar á Sigríðarstöðum. Hrossin voru látin synda yfir. Jarþrúður, er var þriggja ára, vildi ekki láta bera sig út í vatnið en sagðist vilja fara inn í baðstofu. Björn reiddi hana Þegar komið var upp á Vaðlaheiði, var hríðarhraglingur en festi ekki snjó. Jóhanna, elsta barnið var þá 5 ára og Elísabet aðeins 15 vikna. Reiddi Helga hana sjálf á klakksöðli eða nýja söðlinum eins og þá var sagt. Þau komu öll að Varðgjá til gistingar og var tekið með ágætum hjá Margréti systur Skúla á Sigríðarstöðum og seinna manni hennar, Hermanni. Margrét var móðir Þóru konu Garðars Gíslasonar og Snjólaugar konu Bjarna Arasonar. Hermann flutti þau morguninn eftir á bát sínum yfir að Akur- eyri. Þar var gist hjá Marselíu frá Möðruvöllum, föðursystur Helgu. Á Akureyri var viðstaðan stutt og farið þaðan með skipi til Seyðis- fjarðar. Samskipa þeim til Seyðisfjarðar var séra Matthías Jochums- son. Hcfðu þau heimsótt hann á Akureyri og hann þau að Hálsi, er hann var að fylgja bróðursyni sínum, séra Jóni Arasyni, að Þór- oddsstað. Magnús sonur hans var jafngamali Jóhönnu Pétursdóttur. Lét séra Matthías jafnan skila kveðju frá Magga til Jóhönnu. Að vestan voru svo kynnin rík við móðurfólk séra Péturs, svo sem Goðasteinn 19
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.